1212 Millistríðsárin
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- Balfour-yfirlýsingin
- yfirlýsing Alfreds Balfour, utanríkisráðherra Bretlands, frá 1917 þar sem hann lýsti opinberlega stuðningi við stofnun þjóðarheimilis gyðinga í Palestínu
- Bjórkjallarauppreisnin
- tilraun Adolfs Hitler og fylgismanna hans árið 1923 til að ná borginni München á sitt vald
- samyrkjuvæðing
- yfirtaka ríkisstjórnar á landbúnaði landsins
- fasismi
- stjórnmálahreyfing sem leggur áherslu á að gera borgara að staðföstum þjóðernissinnum sem keppa að einingu og kynþáttahreinleika til að vinna gegn meintri hnignun þjóðarinnar
- fimm ára áætlanir
- áætlanir sem Sovétríkin tóku upp á fjórða áratugnum og settu markmið um iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu sem voru yfirleitt óraunhæf
- flapper-kona
- kona á þriðja áratugnum sem tileinkaði sér sjálfstæðan lífsstíl, klæddist styttri pilsum og var með styttra hár
- gullfótur
- peningakerfi þar sem verðgildi gjaldmiðils lands er beintengt verðgildi gulls
- verg landsframleiðsla (VLF)
- verðmæti allra vara og allrar þjónustu sem land framleiðir á einu ári
- Guomindang
- kínverski þjóðernisflokkurinn sem Sun Yat-sen stofnaði og Chiang Kai-shek leiddi síðar
- Írska fríríkið
- ríki sem sýslurnar tuttugu og sex í suðurhluta Írlands mynduðu og var síðar nefnt Írland
- Kellogg–Briand-sáttmálinn
- samningur frá 1928 þar sem meira en sextíu ríki afsöluðu sér notkun stríðs sem tækis í utanríkisstefnu
- Þjóðabandalagið
- fjölþjóðastofnun sem stofnuð var með Versalasamningnum frá 1919 til að stuðla að sameiginlegu öryggi
- Gangan mikla
- ganga stuðningsmanna kommúnista norður á bóginn undir forystu Mao Zedong sem bjargaði þeim frá útrýmingu af hálfu Guomindang
- umboðskerfið
- kerfi þar sem yfirráð yfir landsvæði voru færð frá einni ríkisstjórn til annarrar undir eftirliti Þjóðabandalagsins
- Nýi sáttmálinn (New Deal)
- bandarísk efnahagsumbótaáætlun undir stjórn Franklins Roosevelt sem kom á fót atvinnubótaáætlunum
- Nýja efnahagsstefnan (NEP)
- stefna Leníns sem innleiddi vissa þætti kapítalisma til að bregðast við þrengingum og vaxandi óánægju meðal rússnesku þjóðarinnar
- New Negro-hreyfingin
- hreyfing sem varð til á þriðja áratugnum þegar svartir Bandaríkjamenn börðust fyrir auknum borgararéttindum
- panafríska hreyfingin
- hreyfing sem byggðist á þeirri hugmynd að allir íbúar Afríku gætu unnið saman að auknu sjálfstæði
- stríðsskaðabætur
- peningagreiðslur sem Þýskalandi bar að inna af hendi til bandalagsríkjanna til að bæta þeim upp eyðilegginguna sem þau urðu fyrir í stríðinu
- Saltgangan
- tvö hundruð mílna (um 320 kílómetra) ganga sem Mohandas (Mahatma) Gandhi leiddi á Indlandi árið 1930 til að mótmæla banni Breta við saltsöfnun og háum sköttum á saltkaup
- Schutzstaffel (SS)
- þýsk hálfhernaðarleg samtök nasista sem ætlað var að annast öryggisgæslu og beita ógnunum
- Sinn Féin
- stjórnmálaflokkur sem stofnaður var árið 1905 og barðist fyrir auknu fullveldi Írlands
- sósíalískt raunsæi
- listhreyfing í Sovétríkjunum sem gerði verkafólk að viðfangsefni sínu og snerist ekki síður um ættjarðarást en list
- kosningaréttarsinni
- einstaklingur sem barðist fyrir kosningarétti kvenna
- alræði
- stjórnarform þar sem ríkið hefur stjórn á öllum þáttum í lífi einstaklings
- Versalasamningurinn
- samningur frá 1919 sem batt formlega enda á fyrri heimsstyrjöldina, endurskipulagði landamæri Evrópu og stofnaði Þjóðabandalagið