77 Lífið í Rómaveldi
Beitingar- og ígrundunarspurningar
Beitingar- og ígrundunarspurningar
1.
Hvort hefðir þú fremur viljað vera karl eða kona í rómversku samfélagi? Hvers vegna? Hvernig gátu konur farið með völd í feðraveldissamfélagi Rómar?
2.
Hvaða hliðstæður getur þú greint milli hugsjónarinnar um rómversku fjölskylduna og hugsjónarinnar um rómverskt stjórnarfar, sem áttu að endurspegla hvor aðra? Hvaða eiginleikar hefðu styrkt hvort tveggja og hvaða vandamál gætu valdið því að hvort tveggja liðaðist í sundur?
3.
Skrifaðu dagbókarfærslu sem lýsir einum degi í lífi þræls eða frelsingja í Róm til forna.
4.
Er einhver viðburður í samtímanum sem hefur sambærilegt félagslegt og pólitískt vægi og rómversku almenningsleikarnir? Telur þú að stjórnmálaleiðtogar reyni enn að friða almenning með „brauði og leikum“? Ef svo er, hvernig?
5.
Hvernig notuðu keisararnir efnahagskerfið til að efla hollustu meðal Rómverja?
6.
Hvernig stuðluðu landvinningar að rómversku efnahagslífi?
7.
Berðu saman trúarsiði og trúarhugmyndir í Róm og greindu hvað var líkt og ólíkt með þeim. Hvaða sameiginlegu og ólíku einkenni gerðu hefðbundin rómversk trúarbrögð og launhelgatrú aðlaðandi?
8.
Hvaða meginþætti rómverskra trúarbragða getur þú tengt við fyrri umfjöllun kaflans um rómversku fjölskylduna?
9.
Hver var helsti munurinn á þjóðunum í austur- og vesturhluta Rómaveldis og hvað áttu þær sameiginlegt?
10.
Hvernig áttu Rómverjar samskipti við ýmsa staðbundna íbúahópa víðs vegar um heimsveldið og hvernig hafði rómversk menning áhrif á þá?