11 Velkomin í hagfræði!
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- hringrásarmynd efnahagslífsins
- skýringarmynd sem sýnir hagkerfi þar sem heimili og fyrirtæki eiga viðskipti á vöru- og þjónustumarkaði og vinnumarkaði
- tilskipanahagkerfi
- hagkerfi þar sem stjórnvöld taka efnahagslegar ákvarðanir og eiga auðlindirnar
- verkaskipting
- fyrirkomulag þar sem starfsfólk skiptir með sér verkefnum sem þarf til að framleiða vöru eða veita þjónustu
- hagfræði
- fræðigrein sem fjallar um hvernig fólk tekur ákvarðanir þegar auðlindir eru takmarkaðar
- stærðarhagkvæmni
- þegar meðalkostnaður við framleiðslu hverrar einingar lækkar eftir því sem heildarframleiðslan eykst
- útflutningur
- vörur og þjónusta sem framleiddar eru innanlands og seldar til útlanda
- ríkisfjármálastefna
- stefna í efnahagsmálum sem tekur til útgjalda hins opinbera og skattheimtu
- hnattvæðing
- þróun þar sem kaup og sala á mörkuðum fara í síauknum mæli fram yfir landamæri
- vöru- og þjónustumarkaður
- markaður þar sem fyrirtæki selja framleiðslu sína og heimili kaupa hana
- verg landsframleiðsla (VLF)
- mælikvarði á heildarframleiðslu hagkerfis
- innflutningur
- vörur og þjónusta sem framleiddar eru erlendis og seldar innanlands
- vinnumarkaður
- markaður þar sem heimili bjóða fyrirtækjum og öðrum atvinnurekendum vinnuafl sitt
- þjóðhagfræði
- sú grein hagfræðinnar sem fjallar um víðtæk viðfangsefni á borð við hagvöxt, atvinnuleysi, verðbólgu og vöru- og þjónustujöfnuð
- markaður
- samspil hugsanlegra kaupenda og seljenda þar sem framboð og eftirspurn mætast
- markaðshagkerfi
- hagkerfi þar sem efnahagsleg ákvarðanataka er dreifstýrð, einstaklingar eiga auðlindirnar og fyrirtæki bjóða vörur og þjónustu í samræmi við eftirspurn
- örhagfræði
- sú grein hagfræðinnar sem fjallar um hegðun einstakra aðila í hagkerfinu, svo sem heimila, launafólks og fyrirtækja
- líkan
- sjá kenningu
- peningastefna
- stefna sem felur í sér breytingar á vöxtum, framboði lánsfjár í hagkerfinu og umfangi lántöku
- einkaframtak
- fyrirkomulag þar sem einstaklingar eða hópar þeirra eiga og reka framleiðslutækin, það er auðlindir og fyrirtæki
- skortur
- aðstæður þar sem óskir fólks um vörur og þjónustu eru meiri en tiltækt framboð
- sérhæfing
- þegar starfsfólk eða fyrirtæki einbeita sér að tilteknum verkefnum sem henta þeim vel innan heildarframleiðsluferlisins
- kenning
- einfölduð framsetning á fyrirbæri eða aðstæðum sem dregur fram nægilega mörg lykileinkenni til að auðvelda okkur að skilja viðfangsefnið
- hefðbundið hagkerfi
- yfirleitt landbúnaðarhagkerfi þar sem efnahagsstarfsemi fylgir siðum og venjum sem hafa mótast í tímans rás
- skuggahagkerfi
- markaður þar sem viðskipti kaupenda og seljenda brjóta gegn einni eða fleiri reglum hins opinbera