77 Eiginleikar rauntalna
Inngangur að eiginleikum rauntalna

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur að eiginleikum rauntalna
Bútasaumsteppi verður til þegar mörg ólík efnisstykki eru saumuð saman. Stykkin geta verið mismunandi að lit, stærð og lögun. Með því að raða saman ólíkum gerðum þeirra má búa til óendanlega mörg mynstur. Á svipaðan hátt og efnisstykkin greina stærðfræðingar á milli ólíkra talnategunda. Ólíkar talnategundir í stæðu geta gefið óendanlega margar niðurstöður. Við höfum þegar fjallað um talningartölur, núll og jákvæðar heiltölur og heiltölur. Í þessum kafla kynnumst við fleiri talnategundum og eiginleikum þeirra.