2020 Segulmagn
Dæmi
20.1 Segulsvið, sviðslínur og kraftur
Dæmi 18. Beinn vírbútur ber 0,25 A straum. Hve langur þarf vírbúturinn að vera til að valda 4,0 mN krafti á segul sem myndar einsleitt 0,015 T segulsvið hornrétt á vírinn?
- 0,55 m
- 1,1 m
- 2,2 m
- 4,4 m
20.3 Rafsegulspan
Dæmi 19. Hver er straumurinn í vírlykkju með 10 Ω viðnám þegar segulflæðið í gegnum lykkjuna breytist úr núlli í 10 Wb á 1,0 s?
- −100 A
- −2,0 A
- −1,0 A
- +1,0 A
Dæmi 20. Íspenna spanast þegar spólu með 1.000 vafningum og 20,0 cm þvermáli er snúið í 5,00 × 10⁻⁵ T segulsviði jarðar. Hver er meðalíspennan ef flötur spólunnar er upphaflega hornréttur á segulsvið jarðar og er snúið þannig að hann verði samsíða sviðinu á 10,0 ms?
- −1,6 × 10⁻⁴ V
- +1,6 × 10⁻⁴ V
- +1,6 × 10⁻¹ V
- −1,6 × 10⁻¹ V