Samantekt
Samantekt
9.1 Frumkvöðlastarfsemi og sprotamenning
Mikill kraftur og spenna getur fylgt frumkvöðlastarfi og sprotafyrirtækjum. Marga heillar að stofna fyrirtæki, vera eigin yfirmaður, hafa veruleg áhrif á atvinnulífið, skapa frumkvöðlamenningu sem aðrir tileinka sér og jafnvel auðgast í leiðinni. Lífsstíll frumkvöðuls er þó krefjandi og aðeins lítill hluti sprotafyrirtækja nær árangri. Ágreiningur í samskiptum er algengur í sprotaumhverfi og frumkvöðlar sem vilja vera trúir framtíðarsýn sinni og siðferðilegum gildum eiga erfiða leið fyrir höndum. Stofnendur þurfa hvað eftir annað að ákveða fyrir hvað þeir vilja að þeirra verði minnst: aðeins fyrir viðskiptalegan árangur eða einnig fyrir siðferðilegar aðferðir við að ná honum og þá mannúðlegu menningu sem þeir byggðu upp í fyrirtækinu. Stundum rekast þessi markmið á, en siðferðilega ábyrgir frumkvöðlar leitast við að samræma þau, bæði fyrir sjálfa sig og fyrirtæki sín. Sú viðleitni er kjarni siðferðilegrar forystu.
9.2 Áhrif auglýsinga
Internetið og samfélagsmiðlar eru nýr og áhrifamikill vettvangur markaðssetningar þar sem reglur og siðferðileg viðmið eru enn í mótun. Sálfræðileg skírskotun og dulin boð vekja sérstök siðferðileg álitamál. Glöggir neytendur þurfa því að beita eigin dómgreind til að greina staðreyndir frá öðrum fullyrðingum um auglýstar vörur og vernda þá sem þeir bera ábyrgð á gegn skaðlegustu stýriáhrifum markaðssetningar.
9.3 Tryggingageirinn
Fyrirtækjaeigendur og einstaklingar greiða iðgjöld í þeirri von að þeir þurfi aldrei að leggja fram bótakröfu samkvæmt vátryggingarsamningi. Þar sem afkoma tryggingageirans er best þegar bótakröfur eru fáar og fjárhæðir þeirra lágar kann hið opinbera að þurfa að gegna stærra hlutverki við umsýslu hamfaratrygginga í samstarfi við einkaaðila. Dæmi um slíkt samstarf eru flóðatryggingar á vegum Alríkisstofnunar Bandaríkjanna um neyðarstjórnun (FEMA) og tryggingavernd Jarðskjálftatryggingastofnunar Kaliforníu á svæðum þar sem hætta er á stórfelldum jarðskjálftum. Taka þarf afstöðu til siðferðilegra álitaefna, meðal annars hvort verja eigi meiri skatttekjum til að niðurgreiða slíkt samstarf.
9.4 Siðferðileg álitamál við veitingu heilbrigðisþjónustu
Ólíkt mörgum Evrópuríkjum höfðu Bandaríkin litla hefð fyrir því að samræma þátttöku alríkis- eða fylkisstjórna og einkarekinna vinnuveitenda í veitingu heilbrigðisþjónustu. Þótt gæði bandarískrar heilbrigðisþjónustu væru sjaldan dregin í efa olli takmarkað aðgengi að henni fyrirtækjum siðferðilegum vanda, enda var margt starfsfólk háð vinnuveitanda sínum um sjúkratryggingavernd. Lögin um sjúklingavernd og viðráðanlega heilbrigðisþjónustu frá 2010 voru metnaðarfull tilraun til að mæta þörfinni fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir alla. Fylki í Bandaríkjunum höfðu einnig íhugað og í sumum tilvikum lögfest eigin áætlanir um slíka þjónustu.