Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Siðferði er hugtak sem skiptir mannfólk miklu máli. Sumir telja það hafa þróast til þess að fjölskyldur og ættbálkar gætu unnið saman við erfiðar aðstæður. Aðrir benda á hvernig það hefur verið notað til að setja reglur um viðskipti, jafnvel einföld vöruskipti. Enn aðrir telja siðferðilega hegðun innbyggða í vitsmunakerfi heilans. Það skýri hvers vegna siðareglur og siðferðileg viðmið er að finna í jafn ólíkum ritum og lögbók Hammúrabís (babýlónskri lögbók sem er nær fjögur þúsund ára gömul), Biblíunni, lögbók Napóleons og Speki Konfúsíusar. Öll þessi rit lýsa leiðum til að lifa saman í samfélagi.
Hver sem uppruninn er hefur siðferði nánast örugglega fylgt mannkyni frá upphafi og tekið á sig ólíkar myndir eftir tungumáli, menningu, sögu og landfræðilegum aðstæðum (mynd 5.1). En eru til grunngildi sem eru óháð stund og stað? Ef svo er, endurspeglast þau í reglum viðskiptasiðfræðinnar? Virðing fyrir öðrum birtist með ólíkum hætti eftir stöðum. Í Dúbaí er te borið fram við samningaviðræður. Í Tókýó eru formlegt mál og hneigingar viðhöfð í upphafi. Í Líma fara kurteislegar fyrirspurnir um fjölskylduna á undan viðskiptunum. Er virðing þá algilt gildi?
Í stuttu máli: að hve miklu leyti mótast siðareglur fyrirtækja af menningu, tíma og landfræðilegum aðstæðum? Ef hver einstaklingur ber aðeins ábyrgð á eigin hegðun, getur viðskiptasiðfræði þá verið algild?