44 Þrír sérstakir hagsmunaaðilar: Samfélagið, umhverfið og stjórnvöld
Matsspurningar
Matsspurningar
Hlutafélög sem fylgja stefnu um samfélagsábyrgð skila hluthöfum jafnan minni arðsemi af fjárfestingu.
- Satt
- Ósatt
Í hagfræðikenningum Miltons Friedman er mælt með aukinni reglusetningu stjórnvalda til að tryggja að hlutafélög axli samfélagsábyrgð.
- Satt
- Ósatt
Hvert eftirfarandi er ekki rétt?
- Forgangur hluthafa hefur skýra stoð í bandarískum réttarfordæmum.
- Að hámarka hagnað í þágu hluthafa er réttmætt markmið stjórnenda.
- Arður er greiddur af hagnaði fyrirtækja.
- Fyrirtæki sem fylgja stefnu um samfélagsábyrgð geta jafnframt verið arðbær.
Atvinnugreinar vilja sjálfar ráða sínum málum og kjósa því frekar sjálfsreglusetningu en lög sem stjórnvöld setja. Sjálfsreglusetning er oft ________.
- byggð á siðareglum utanaðkomandi aðila
- framfylgt af dómstólum
- andstæð fordæmisrétti
- ódýrari fyrir fyrirtæki en reglusetning stjórnvalda
Nefndu tvo kosti þess að fyrirtæki fylgi stefnu um samfélagsábyrgð.
Hvað er réttarheimspeki jarðar?
Hver eftirfarandi fullyrðinga lýsir harmleik almenninganna best?
- Fólk er ávallt reiðubúið að færa fórnir í þágu samfélagsins.
- Líklegt er að fólk nýti eins mikið af náttúruauðlindum og það vill, án tillits til annarra.
- Almannaheill er vinsælt markmið fyrirtækja.
- Harmleikir verða til þegar reglusetning stjórnvalda er of mikil.
ISO-staðlar eru sjálfbærnistaðlar fyrir fyrirtæki sem ________.
- fylkisstjórnin setur
- alríkisstjórnin setur
- Alþjóðaviðskiptastofnunin setur
- ekkert ofangreint á við
Þegar í ljós kemur að fyrirtæki hafi valdið umhverfistjóni er því oft gert að sæta ábyrgð, annars vegar gagnvart stjórnvöldum og hins vegar gagnvart þeim sem urðu fyrir tjóninu, í aðskildum málum.
- Satt
- Ósatt
Hver eftirfarandi aðgerða gæti dregið úr hlýnun jarðar?
- að reisa fleiri kolakynt orkuver
- að framleiða fleiri dísilknúna bíla
- að innleiða kolefnisskatt
- að gera bensín skattfrjálst
Lög banna öllum stjórnendum að taka við háttsettu opinberu embætti og snúa síðan aftur til starfa hjá sama fyrirtæki í einkageiranum.
- Satt
- Ósatt
Loftmengun er háð reglusetningu á þremur stjórnsýslustigum: hjá sveitarfélögum, fylkjum og alríkinu.
- Satt
- Ósatt
Hver eftirfarandi fullyrðinga er rétt?
- Aðeins örfáir stjórnendur fyrirtækja hafa farið úr einkageiranum til starfa hjá hinu opinbera.
- Flestar eftirlitsstofnanir stjórnvalda eru fjármagnaðar með gjafafé.
- Margir stjórnendur hafa farið frá Goldman Sachs til starfa hjá stjórnvöldum.
- Fáir fara úr opinberri þjónustu til starfa í einkageiranum.
Hvert eftirfarandi ákvæða stjórnarskrárinnar veitir alríkisstjórninni vald til reglusetningar?
- fyrsti viðaukinn við stjórnarskrána
- tíundi viðaukinn við stjórnarskrána
- viðskiptaákvæðið
- forgangsákvæðið
Í dómsmálinu Citizens United var ________.
- staðfest gildi laga sem takmörkuðu útgjöld í þágu frambjóðenda til stjórnmálaembætta
- gildandi löggjöf felld úr gildi
- málinu vísað aftur til undirréttar til nýrrar málsmeðferðar
- hert á takmörkunum á útgjöldum til stjórnmálastarfsemi
Hvaða viðauki við stjórnarskrána var þungamiðja Citizens United-málsins? Útskýrðu svarið.