11 Af hverju siðfræði skiptir máli
Matsspurningar
Matsspurningar
Hvert þessara hugtaka tengist nytjastefnu?
- afleiðingar
- athafnir
- skapgerð
- skylda
Samkvæmt hinu gríska rökfræðikerfi sem Sókrates kynnti byggjast kenningar í boðandi siðfræði þegar öllu er á botninn hvolft á skynsemi.
- Satt
- Ósatt
Útskýrðu hvers vegna siðferðileg ábyrgð nær lengra en það eitt að fara að lögum.
Lýstu muninum á kenningum í boðandi og lýsandi siðfræði.
Hvert eftirfarandi er ekki hagsmunaaðili?
- fjölmiðlar
- fyrirtækjamenning
- umhverfið
- viðskiptavinir
Samkvæmt Milton Friedman felst samfélagsleg ábyrgð fyrirtækis eingöngu í því að bæta velferð samfélagsins.
- Satt
- Ósatt
Hvað felst í samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR)?
Lýstu raunhæfri aðferð til að forgangsraða kröfum hagsmunaaðila.
Útskýrðu hvaða áhrif siðferðilega ábyrgir viðskiptahættir fyrirtækis hafa á viðskiptavild þess.
Fjölskyldan hefur almennt mikil áhrif á siðferðileg viðmið okkar.
- Satt
- Ósatt
Hver eftirfarandi kenninga í boðandi siðfræði styður hugmyndina um að fylgja mörgum siðferðilegum viðmiðum?
- skyldusiðfræði
- nytjastefna
- dygðasiðfræði
- ekkert af ofangreindu
Útskýrðu ávinninginn af því að fylgja einu siðferðilegu viðmiði.