1.3 Eitt siðferðilegt viðmið eða mörg
Námsmarkmið
Að þessum kaflahluta loknum átt þú að geta:
Viðskiptafólk beitir stundum ólíkum siðferðilegum viðmiðum eftir aðstæðum, einkum þegar það starfar í annarri menningu en þeirri sem það ólst upp við eða vinnur með fólki sem fylgir öðrum hefðum. Ef við leitum alltaf út fyrir okkur sjálf að siðferðilegri leiðsögn og látum aðstæðurnar ráða hverju sinni getum við orðið óviss um hvað sé siðlegt í viðskiptum. Hagsmunaaðilar sjá þá að enginn fastur siðferðilegur kjarni býr að baki breytni okkar og það getur skaðað bæði orðspor okkar og fyrirtækisins. Til að forðast að falla í siðferðilega afstæðishyggju — þá skoðun að ekkert sé rétt eða rangt í sjálfu sér og að siðferði ráðist eingöngu af aðstæðum — þurfum við að velja okkur eitt heildstætt viðmið sem við fylgjum í öllum samskiptum við annað fólk.
Fólk sem fylgir mörgum siðferðilegum viðmiðum gerir ef til vill mestar kröfur til sín gagnvart fjölskyldunni, enda ber það mesta virðingu fyrir henni. Í viðskiptum kann sami einstaklingur hins vegar að breyta siðlaust og stefna að því einu að safna auði án miskunnar og með hvaða ráðum sem er. Líf okkar fer þó ekki aðeins fram í vinnu og innan fjölskyldunnar. Viðkomandi kann því að fylgja enn öðru viðmiði í samskiptum við mótherja í íþróttum, ókunnugt fólk á götu eða fólk í trúfélagi sínu.
Þótt við veljum sjálf hvaða siðferðilegu viðmið við tileinkum okkur getur sum lífsreynsla haft meiri áhrif á valið en önnur. Uppeldi og menningarhefðir eru meðal þess sem mótar okkur mest. Orðið menning er hér notað í víðum skilningi og nær meðal annars yfir trúarleg og þjóðernisleg viðmið, það er venjulega hegðun í samfélaginu sem við búum í. Menning og fjölskylda hafa einnig gagnkvæm áhrif hvor á aðra. Fjölskyldan lifir í ákveðinni menningu og mótast af henni, en hún leggur líka grunninn að dýpstu gildum okkar. En hvernig sem við vorum alin upp getum við sjálf valið hvaða siðferðilegu viðmið við notum í viðskiptum.
Hvers vegna ættum við að fylgja einu siðferðilegu viðmiðakerfi við allar aðstæður? Grísku heimspekingarnir og síðari talsmenn kenninganna í boðandi siðfræði, sem fjallað var um hér á undan, myndu svara því svo: Ef við notum skynsemina til að ákveða hvernig við eigum að breyta er rökrétt að fylgja sama siðferðilega viðmiðakerfinu í öllum samskiptum, við allt fólk og við allar aðstæður. Þannig breytum við eins vel og við getum, hver sem á í hlut. Breytni okkar verður jafnframt samræmd í samskiptum við fjölskyldu, vini, viðskiptavini og alla aðra. Við þurfum þá ekki að velja ólík gildi eftir aðstæðum. Þegar fólk sér okkur í mismunandi aðstæðum er líklegra að það treysti okkur, því það sér að við höldum sömu gildum á lofti hverjar sem aðstæðurnar eru.
Talsmenn allra kenninga í boðandi siðfræði myndu raunar halda því fram að eina skynsamlega leiðin væri að fylgja einu siðferðilegu viðmiði. Talsmaður skyldusiðfræði myndi segja að okkur bæri að rækja tilteknar skyldur óháð því við hverja við ættum samskipti. Nytjastefnumaður myndi segja að hver athöfn okkar ætti að leiða til mestrar hamingju fyrir sem flesta. Dygðasiðfræðingur myndi segja að manneskja gæti ekki talist dygðug ef hana skorti heilindi í framkomu við annað fólk.
Að fylgja einu samræmdu siðferðilegu viðmiði er bæði óeigingjarnt og gott fyrir stjórnandann sjálfan. Væntanlegir viðskiptavinir eru líklegri til að leita til fyrirtækis sem kemur fram við alla af heiðarleika og sanngirni, því þeir gera ráð fyrir að sama muni gilda um þá. Stjórnendur sem eru alltaf traustsins verðir þurfa heldur aldrei að hafa áhyggjur af því hvort þeir hafi heillað væntanlegan viðskiptavin, því þeir stunda alltaf heiðarleg viðskipti. Eitt viðmið um breytni í viðskiptum, þar sem áhersla er lögð á virðingu og góða þjónustu, höfðar til allra.
Boðandi siðfræði felst í því að komast að því hvað sé rétt og greina það frá röngu. Með henni mótum við reglur og viðmið sem leiðbeina okkur við mikilvægar ákvarðanir. Þau siðferðilegu viðmið sem við fylgjum alls staðar eru ekki háð tíma, manneskju eða stað. Í daglegu lífi gegnum við ólíkum hlutverkum, til dæmis sem starfsfólk, foreldrar, leiðtogar og nemendur. Til að vera í raun siðleg manneskja þurfum við að fylgja einu og sama siðferðilega viðmiðakerfinu, hvaða hlutverki sem við gegnum. Það þarf meðal annars að byggjast á almennum grundvallarreglum á borð við heiðarleika, heilindi, hollustu, sanngirni, virðingu fyrir lögum og virðingu fyrir öðru fólki.
Önnur ástæða til að tileinka sér algilt siðferðilegt viðmið er að það gerir breytni okkar gagnsæja og heiðarlega. Ef stjórnendur fyrirtækis fullyrða að heiðarleg viðskipti séu ávallt leiðarljós þess geta þeir ekki lögsótt þá sem svíkja fyrirtækið en litið undan þegar æðstu stjórnendur þess gera hið sama. Hagsmunaaðilar koma auga á slíka hræsni og láta stjórnendur fyrirtækisins réttilega gjalda hennar.
Stjórnendur fyrirtækja þurfa þó ekki að velja aðeins eina þeirra kenninga í boðandi siðfræði sem hér hefur verið lýst. Dygðakenning, nytjastefna og skyldusiðfræði hafa allar margt til síns ágætis. Eitt má þó ekki breytast: Fyrirtækið á aldrei að gera undantekningu frá reglum sínum þegar það hagnast á því á kostnað viðskiptavina eða annarra hagsmunaaðila.
Ef við snúum okkur frá kenningum að daglegu lífi getum við líka skoðað hvernig það sem við segjum og gefum til kynna með hegðun okkar mótar orðspor okkar. Ef við tileinkum okkur siðferðilega afstæðishyggju taka vinir, fjölskylda og samstarfsfólk eftir því að við fylgjum ólíkum viðmiðum eftir aðstæðum. Slíkur skortur á samkvæmni og heilindum getur breytt viðhorfi þeirra til okkar og er líklegur til að skaða orðspor okkar.