1.2 Siðfræði og arðsemi
Námsmarkmið
Að þessum kaflahluta loknum átt þú að geta:
Í rekstri fyrirtækja vegur fátt þyngra en það meginmarkmið að hámarka auð hluthafa og nú á dögum þýðir það einkum að auka hagnað á hverjum ársfjórðungi. Þegar einblínt er á einn mælikvarða yfir svo stuttan tíma — það er þegar horft er út frá skammtímasjónarmiði — verður sýnin á árangur fyrirtækisins þröng og skammsýn.
Til að meta raunverulega arðsemi þarf hins vegar að horfa til langs tíma. Ekki er hægt að leggja nákvæmt mat á árangur út frá einum ársfjórðungi. Oft líður lengri tími áður en vara eða þjónusta nær fótfestu á markaði og í samkeppni eða áður en ný viðskiptastefna fer að skila árangri. Það tekur tíma og kostar fé að mæta kröfum neytenda, innleiða umhverfisvæna starfshætti, axla samfélagslega ábyrgð og gera meira en lágmarkskröfur segja til um. Viðbótarkostnaðurinn og fyrirhöfnin geta þó skilað hagnaði til langs tíma. Ef við metum árangur til lengri tíma sjáum við frekar hve góð áhrif siðleg breytni hefur á alla sem tengjast fyrirtækinu.
Arðsemi og árangur: Horft til langs tíma
Fyrir nokkrum áratugum héldu sumir stjórnunarfræðingar því fram að samviskusamur stjórnandi í fyrirtæki sem rekið er í hagnaðarskyni breytti siðlega með því að hugsa aðeins um að hámarka hagnaðinn. Nú telja flestir fræðimenn að siðleg forysta í viðskiptum felist í því að gera rétt gagnvart öllum sem starfsemin snertir beint, þar á meðal hluthafa, það er þeirra sem eiga hlut í fyrirtækinu. Stjórnendur breyta með öðrum orðum rétt þegar þeir íhuga hvað sé öllum hagsmunaaðilum fyrirtækisins fyrir bestu. Fyrirtæki sem tileinka sér þessa nálgun ná auk þess betri fjárhagslegum árangri, einkum til langs tíma.
Hagfræðingurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Milton Friedman sagði í frægri grein í New York Times Magazine árið 1970 að eina „samfélagslega ábyrgð fyrirtækis [væri] að auka hagnað þess“. 2 Þessi hugmynd náði fótfestu í viðskiptalífinu og jafnvel í kennslu í viðskiptafræði. Það er vissulega leyfilegt og jafnvel æskilegt að fyrirtæki stefni að arðsemi. Stjórnendur verða þó líka að skilja í hvaða samhengi fyrirtækið starfar og hvernig auðurinn sem þeir skapa getur bætt heiminn. Þetta samhengi er samfélagið, sem leyfir fyrirtækinu að starfa og greiðir götu þess.
Með starfsemi sinni gengur fyrirtæki í óbeinan samfélagssáttmála, það er samkomulag allra í samfélaginu um að vinna saman öllum til góðs. Þótt fyrirtæki leitist við að hámarka hagnað hluthafa verður það jafnframt að viðurkenna að starfsemin hefur að einhverju marki áhrif á samfélagið í heild. Samfélagið leyfir fyrirtækinu að verða til og stunda rekstur og í staðinn ber fyrirtækinu skylda til að gera það sem er best fyrir sem flesta, hvort sem þeir eru hluthafar eða ekki. Þegar samfélagssáttmálinn er heimfærður á fyrirtæki þýðir hann því að fyrirtækið gefur til baka til samfélagsins sem leyfir því að starfa. Það bætir hag samfélagsins um leið og það auðgast sjálft.
Stjórnendur þurfa ekki aðeins að líta á hagnað frá fleiri hliðum heldur einnig að horfa lengra fram í tímann. Wall Street leggur mikla áherslu á afkomu hvers ársfjórðungs og hvers árs. Þess vegna hafa margir stjórnendur tileinkað sér skammtímasjónarmið og horfa fram hjá áhrifum sem taka lengri tíma að koma fram. Góðgerðarframlög, hvort sem það eru gjafir fyrirtækisins eða sjálfboðavinna starfsfólks, skila til dæmis oft ekki arði fyrr en eftir margra ára starf. Langtímasjónarmið er yfirvegaðri leið til að hámarka hagnað, því þar er gert ráð fyrir að áhrif viðskiptaákvörðunar komi stundum ekki fram fyrr en löngu síðar.
Lítum til dæmis á viðskiptahætti Toyota þegar fyrirtækið hóf að selja bíla sína í Bandaríkjunum árið 1957. Toyota sætti sig árum saman við lítilsháttar tap af bílasölunni vegna þess að fyrirtækið vann að tveimur markmiðum. Annars vegar byggði það upp langvarandi traustssamband við þá sem síðar urðu tryggir bandarískir viðskiptavinir. Hins vegar vann það að því að breyta þeirri hugmynd bandarískra neytenda að japanskar vörur væru ódýrar og óáreiðanlegar. Fyrirtækið náði báðum markmiðum með þolinmæði og langtímahugsun. Sú nálgun er lykilþáttur í rekstrarhugmyndafræðinni „The Toyota Way“, sem leggur sérstaka áherslu á langtímamarkmið í viðskiptum, jafnvel á kostnað skammtímahagnaðar. 4
Hvað stuðlar að jákvæðri ímynd fyrirtækis til langs tíma? Þar koma margir þættir við sögu, meðal annars orðspor fyrir sanngjarna framkomu gagnvart viðskiptavinum og starfsfólki og heiðarlega viðskiptahætti. Slík fyrirtæki má finna í öllum atvinnugreinum og löndum. Sem dæmi má nefna bandaríska verkfræði- og hönnunarfyrirtækið Fluor, ítalska matvæla- og drykkjarfyrirtækið illycaffè, bandaríska hótelrisann Marriott og finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia. Þegar neytendur velja sér fyrirtæki til viðskipta eða atvinnuleitendur vinnustað eru fyrirtæki sem leggja áherslu á siðlega starfshætti oft þau fyrstu sem koma upp í hugann.
Hvers vegna ætti hagsmunaaðilum að skipta máli að fyrirtæki gangi lengra en siðferðileg og lagaleg lágmarksviðmið samfélagsins? Svarið er einfalt: Siðlegur rekstur er góður rekstur. Fyrirtæki eru arðbær af mörgum ástæðum, meðal annars vegna hæfra stjórnenda, einbeitts og ánægðs starfsfólks og verðmætra vara og þjónustu sem mæta eftirspurn neytenda. Önnur og mjög mikilvæg ástæða er sú að þau hafa það að stefnu og markmiði að láta gott af sér leiða.
Ár eftir ár eru þau bandarísku fyrirtæki sem njóta mests álits einnig meðal þeirra sem hafa hæstu hagnaðarhlutföllin. Umhverfisvænir starfshættir, stuðningur við góðgerðarmál og einlæg umhyggja fyrir velferð starfsfólks skila sér í afkomunni. Neytendur vilja eiga viðskipti við fyrirtæki sem láta sér annt um aðra og umhverfið. Árin 2008 og 2009 fóru mörg fyrirtæki sem stunduðu ósiðlega viðskiptahætti í þrot. Fyrirtækjum sem forðuðust skjótfenginn gróða, áhættusamar og ósiðlegar fjárfestingar og aðra ósiðlega viðskiptahætti vegnaði hins vegar oft vel. Neikvæðar umsagnir neytenda á samfélagsmiðlum á borð við Yelp og Facebook geta auk þess skaðað framtíðarhorfur fyrirtækis sem hagar sér ósiðlega.
Hluthafar, hagsmunaaðilar og viðskiptavild
Fyrr í þessum kafla kom fram að hagsmunaaðilar væru allir einstaklingar og hópar sem ákvarðanir fyrirtækis hafa áhrif á. Þar á meðal eru hluthafar, það er einstaklingar og stofnanir sem eiga hlutabréf eða hlut í fyrirtæki. Til að reka fyrirtæki á siðlegan hátt þarf að skilja hvaða áhrif viðskiptaákvarðanir hafa á hluthafa og aðra hagsmunaaðila. Eitt erfiðasta verkefni viðskiptafólks er einmitt að vega og meta ólíkar kröfur hagsmunaaðila fyrirtækisins. Ef aðeins er horft til hluthafa leiðir það oft til ósiðlegra ákvarðana. Því þarf að skoða áhrifin á alla hagsmunaaðila og meta þau af skynsemi.
Stjórnendur beina stundum athyglinni einkum að hluthöfum, sérstaklega þeim sem eiga stærstan hlut. Ástæðan er sú að þessir áhrifamiklu einstaklingar og hópar geta ráðið miklu um hvort stjórnendur halda starfi sínu, til dæmis ef áætluð hagnaðarmarkmið fyrirtækisins nást ekki. Margir telja raunar eina tilgang fyrirtækis vera að hámarka skammtímahagnað hluthafa. Ein algengasta villa stjórnenda er þó að horfa aðeins til hluthafa og skammtímaáhrifa á þá. Langtímahagsmunum fyrirtækis er oft best borgið með því að koma ekki aðeins til móts við hluthafa heldur einnig að taka tillit til margra ólíkra hagsmunaaðila og skoða afleiðingar ákvörðunar bæði til skamms og langs tíma.
Hér er einföld aðferð til að taka mið af öllum hagsmunaaðilum í framkvæmd. Skiptu skjánum eða blaðsíðunni í þrjá dálka. Í fyrsta dálknum skráir þú alla hagsmunaaðila í þeirri forgangsröð sem þú telur eiga við (mynd 1.5). Sumir einstaklingar og hópar gegna fleiri en einu hlutverki. Starfsfólk getur til dæmis jafnframt verið hluthafar, íbúar nærsamfélagsins geta verið birgjar og stjórnvöld geta verið viðskiptavinir fyrirtækisins. Í öðrum dálknum skráir þú þau markmið og þá hagsmuni sem þú telur hvern hóp hafa. Þegar aðili gegnir fleiri en einu hlutverki skaltu velja þá hagsmuni sem athafnir þínar hafa beinust áhrif á. Í þriðja dálknum skráir þú líkleg áhrif viðskiptaákvörðunarinnar á hvern hagsmunaaðila. Þessi einfalda tafla ætti að auðvelda þér að greina alla hagsmunaaðila og meta áhrif ákvörðunarinnar á hagsmuni þeirra. Til að gera greininguna persónulegri getur þú látið samstarfsfólk setja sig í spor hagsmunaaðilanna og síðan endurmetið niðurstöðuna.

Jákvætt viðhorf hagsmunaaðila til tiltekins fyrirtækis nefnist viðskiptavild. Hún skiptir máli í rekstri nánast allra fyrirtækja, þótt hún komi ekki beint fram í eignum þeirra og skuldum. Viðskiptavild er óefnisleg eign. Hún getur meðal annars falist í góðu orðspori, verðmætu vörumerki, þekkingarauði og viðhorfum starfsfólks og tryggum hópi viðskiptavina. Samfélagsleg ábyrgð skapar einnig viðskiptavild. Siðleg hegðun stjórnenda eykur verðmæti allra þessara þátta. Viðskiptavild verður ekki til á skömmum tíma en getur ráðið miklu um árangur og arðsemi.
Heiti, fyrirtækismerki og vörumerki fyrirtækis verða óhjákvæmilega verðmætari eftir því sem viðhorf hagsmunaaðila til þess batnar. Gott orðspor er nauðsynlegt til að ná árangri í viðskiptalífi nútímans. Upplýsingar um fyrirtæki og athafnir þeirra eru greiðlega aðgengilegar í fjölmiðlum og á netinu, til dæmis á opinberum umsagnarsíðum á borð við Yelp. Gildi stjórnenda eru því sífellt til skoðunar og umræðu. Þau hafa áhrif bæði innan og utan fyrirtækisins. Fyrirtækjamenning felst til dæmis í sameiginlegum viðhorfum, gildum og hegðun sem móta innra starfsumhverfi og samskipti stjórnenda og starfsfólks. Þegar allir haga sér siðlega, frá forstjóra og öðrum æðstu stjórnendum til millistjórnenda og almenns starfsfólks, verður fyrirtækjamenningin siðleg og samskiptin á vinnustaðnum góð.
Siðlegir viðskiptahættir skapa viðskiptavild og hún skilar síðan árangri til langs tíma. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að siðlegustu og framsæknustu fyrirtækin í Bandaríkjunum standa sig jafnan betur en keppinautarnir. 8 Til lengri tíma litið er því skynsamlegt að stunda siðleg viðskipti. Þeir skapa viðskiptavild meðal hagsmunaaðila, stuðla að jákvæðri fyrirtækjamenningu og efla að lokum arðsemi.
Þú getur sjálf eða sjálfur lagt mat á þessa fullyrðingu. Hvað ræður því hvaða fyrirtæki þú velur til viðskipta? Segjum að þú leitir að fjármálaráðgjafa vegna fjárfestinga og eftirlaunaáætlunar. Þú finnur nokkur fyrirtæki þar sem ráðgjafarnir hafa svipaða menntun og reynslu og taka svipaða þóknun. Eitt þeirra sker sig þó úr. Það hefur orð á sér, og verðskuldað, fyrir að segja viðskiptavinum sínum sannleikann og ráðleggja þeim það sem er þeim fyrir bestu fremur en það sem skilar fyrirtækinu mestum hagnaði. Myndir þú ekki frekar treysta því fyrirtæki fyrir fjárfestingum þínum?
Hugsum okkur líka hóp fjármálaráðgjafa sem hefur lengi lagt sitt af mörkum til nærsamfélagsins. Hópurinn styrkir góðgerðarsamtök í hverfinu og meðlimir hans verja tíma í sjálfboðavinnu við verðug verkefni á staðnum. Myndir þú ekki frekar treysta þessum hópi fyrir fjárfestingum þínum? Sýnilegur stuðningur hans við nærsamfélagið gæti nægt til að sannfæra þig um að eiga viðskipti við hann. Þannig getur langtímafjárfesting í viðskiptavild í nærsamfélaginu tryggt fyrirtækinu stöðugan straum nýrra viðskiptavina.
Inngangur að samfélagsábyrgð fyrirtækja
Sá sem skilur vel sjónarmið ólíkra hagsmunaaðila er kominn langt með að skilja hugtakið samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR). Samfélagsábyrgð felst í því að fyrirtæki líti á sig sem hluta af samfélaginu, með óskráðar skyldur gagnvart því og ábyrgð gagnvart umhverfinu. Eins og áður kom fram er skýr munur á því að fara að lögum og því að axla siðferðilega ábyrgð. Lög ná ekki yfir öll siðferðileg álitamál sem fyrirtæki standa frammi fyrir. Samfélagsábyrgð tryggir að fyrirtæki starfi á siðlegan hátt í samræmi við menningu sína og markmið og geri meira en lögin krefjast. Fyrirtæki sem axlar samfélagslega ábyrgð getur ekki haft það að eina markmiði að hámarka auð hluthafa, enda myndi það óhjákvæmilega skerða rétt annarra hagsmunaaðila í samfélaginu. Námufyrirtæki sem hunsar samfélagsábyrgð sína kann til dæmis að skerða rétt nærsamfélagsins til hreins lofts og vatns ef það sækist aðeins eftir hagnaði. Samfélagsábyrgð tryggir á hinn bóginn að hagsmunir allra hagsmunaaðila séu metnir í réttu samhengi.
Samfélagsábyrgð má einnig lýsa þannig að siðlegir stjórnendur kjósi að láta gott af sér leiða samhliða arðbærum rekstri. Þetta er einfölduð lýsing en fangar hvernig samfélagsábyrgð birtist innan fyrirtækja. Fyrirtæki má afla hagnaðar, en hlutverk þess ætti ekki að einskorðast við það. Það ætti líka að vera góður nágranni í samfélaginu og leggja sitt af mörkum til þess að samfélaginu öllu vegni vel. Fyrirtækið ætti að hafa jákvæð áhrif á þau samfélög sem það tilheyrir um leið og það vinnur að lögmætum hagnaðarmarkmiðum. Þessi markmið útiloka ekki hvort annað; bæði er mögulegt og lofsvert að stefna að þeim samtímis. Fyrirtæki sem hagar rekstri sínum á þennan hátt skuldbindur sig til samfélagsábyrgðar.