6.1 Hlutverk stoðkerfisins
6.1 Hlutverk stoðkerfisins
Námsmarkmið
Eftir að hafa kynnt þér þennan kafla átt þú að geta:
- Skilgreint bein, brjósk og stoðkerfi
- Talið upp og lýst hlutverkum stoðkerfisins
Bein, eða beinvefur, er harður og þéttur stoðvefur sem myndar stærstan hluta beinagrindar fullorðins manns, stoðgrind líkamans. Á þeim stöðum beinagrindarinnar þar sem bein hreyfast, til dæmis í brjóstkassa og liðum, veitir brjósk, sem er hálfstífur stoðvefur, sveigjanleika og slétt yfirborð fyrir hreyfingu. Stoðkerfið er líffærakerfi sem samanstendur af beinum og brjóski og gegnir eftirfarandi mikilvægum hlutverkum fyrir mannslíkamann:
Stuðningur, hreyfing og vernd
Augljósustu hlutverk stoðkerfisins eru þau sem greina má með beinni athugun. Með því einu að horfa á manneskju má sjá hvernig beinin styðja líkamann, auðvelda hreyfingu hans og vernda hann.
Rétt eins og stálbitar byggingar mynda burðargrind sem ber þunga hennar, mynda bein og brjósk stoðkerfisins burðargrind sem styður við aðra hluta líkamans. Án stoðkerfisins værir þú linur massi úr líffærum, vöðvum og húð.
Bein auðvelda einnig hreyfingu með því að vera festustaðir fyrir vöðvana. Sum bein veita vöðvunum aðeins stuðning en önnur flytja einnig kraftana sem myndast þegar vöðvarnir dragast saman. Frá aflfræðilegu sjónarhorni virka bein sem vogarstangir og liðir sem vogarásar (mynd 6.2). Bein hreyfist ekki nema vöðvi liggi yfir lið og dragist saman. Nánar er fjallað um samspil stoðkerfis og vöðvakerfis, það er stoð- og hreyfikerfið, annars staðar í bókinni.

Bein vernda einnig innri líffæri gegn áverkum með því að þekja þau eða umlykja. Rifbeinin vernda til dæmis lungun og hjartað, bein hryggsúlunnar vernda mænuna og bein höfuðkúpunnar vernda heilann (mynd 6.3).

Geymsla steinefna og orku ásamt blóðmyndun
Á efnaskiptastigi gegnir beinvefur nokkrum mikilvægum hlutverkum. Millifrumuefni beinsins er meðal annars forðabúr fyrir ýmis steinefni sem skipta starfsemi líkamans máli, einkum kalsíum og fosfór. Þessi steinefni, sem eru bundin í beinvefnum, geta losnað aftur út í blóðrásina til að viðhalda þeim styrk sem lífeðlisfræðileg ferli krefjast. Kalsíumjónir eru til dæmis nauðsynlegar fyrir vöðvasamdrátt og til að stjórna flæði annarra jóna sem taka þátt í flutningi taugaboða.
Í beinum fer einnig fram fitugeymsla og myndun blóðfrumna. Mýkri bandvefurinn sem fyllir innra rými flestra beina kallast beinmergur (mynd 6.5). Til eru tvær gerðir beinmergs: gulur beinmergur og rauður beinmergur. Gulur beinmergur inniheldur fituvef og þríglýseríðin sem geymd eru í fitufrumum vefsins geta nýst sem orkugjafi. Í rauðum beinmerg fer fram blóðmyndun, það er myndun blóðfrumna. Rauðkorn, hvítkorn og blóðflögur myndast öll í rauðum beinmerg.
