Spurningar til gagnrýninnar hugsunar
Spurningar til gagnrýninnar hugsunar
Sætuefnið stevía getur komið í stað glúkósa í matvælum. Hvaða þýðingu hefur sameindalíking stevíu og glúkósa fyrir bragðskynið?
Hvers vegna veldur blindbletturinn við sjóntaugardoppina í hvoru auga ekki blindbletti í sjónsviðinu?
Eftir bifhjólaslys missir einstaklingur getuna til að hreyfa hægri fótlegg en hefur eðlilega stjórn á þeim vinstri. Það bendir til hálfskurðar einhvers staðar á brjóstsvæði mænunnar. Hvaða skyntruflana mætti vænta í snertiskyni annars vegar og sársaukaskyni hins vegar? Útskýrðu svarið.
Æxli í heiladingli getur valdið skyntapi í hliðlægu sjónsviði. Heiladingullinn liggur beint neðan undirstúku. Hvers vegna getur þetta gerst?
Ennisblaðsskurður er róttæk aðgerð sem nú er að mestu aflögð. Hún var notuð í geðlæknismeðferð til að rjúfa tengsl framennisbarkar við aðra hluta ennisblaðs og milliheila. Hvers vegna var talið nauðsynlegt að gera slíka aðgerð á einstaklingi með hegðun sem hugsanlega var ekki hægt að hafa stjórn á?
Viðbragð er afmörkuð rás innan sómatíska taugakerfisins. Hvers vegna eru viðbrögð engu að síður prófuð í líkamsskoðun og taugaskoðun til að meta heilsu einstaklings?