11.6 Útlimavöðvar mjaðmagrindar og neðri útlima
11.6 Útlimavöðvar mjaðmagrindar og neðri útlima
Námsmarkmið
Eftir að hafa kynnt þér efni þessa kafla átt þú að geta:
- Borið kennsl á útlimavöðva mjaðmagrindar og neðri útlims
- Greint hreyfingar og hlutverk mjaðmagrindar og neðri útlims
Útlimavöðvar neðri hluta líkamans stilla stöðu mjaðmagrindarinnar og gera hana stöðuga, en hún myndar undirstöðu neðri útlima. Hreyfanleiki axlargrindarinnar er mun meiri en mjaðmagrindarinnar. Mjaðmagrindin hreyfist mjög lítið vegna tengingar sinnar við spjaldbeinið neðst í ásbeinagrindinni. Hreyfiferill hennar er minni vegna þess að hún er gerð til að gera líkamann stöðugan og bera hann uppi.
Vöðvar læris
Hvað myndi gerast ef mjaðmagrindin, sem tengir neðri útlimina við bolinn, hefði sama hreyfiferil og axlargrindin? Ganga myndi meðal annars krefjast meiri orku ef höfuð lærleggjanna væru ekki tryggilega staðsett í augnkörlum mjaðmagrindarinnar. Þyngdarmiðja líkamans er á grindarsvæðinu. Ef hún héldist ekki stöðug væri einnig erfitt að standa upp. Vöðvar ganglimsins bæta því upp minni hreyfiferil og fjölhæfni með stærð og krafti og stuðla þannig að stöðugleika, líkamsstöðu og hreyfingu.
Þjósvæðisvöðvar sem hreyfa lærlegginn
Flestir vöðvar sem festast við lærlegginn og hreyfa hann eiga upptök á mjaðmagrindinni. Stærri lundarvöðvi og mjaðmarvöðvi mynda mjaðmar- og lundarvöðvahópinn. Til stærstu og kraftmestu vöðva líkamans teljast þjóvöðvarnir. Stærsti þjóvöðvinn er stærstur þeirra. Djúpt við hann liggur mið-þjóvöðvinn og djúpt við þann síðarnefnda liggur minnsti þjóvöðvinn, minnstur vöðvanna þriggja (mynd 11.29 og mynd 11.30).


Spennivöðvi lærfells er þykkur, nærri ferhyrndur vöðvi ofarlega og hliðlægt á læri. Hann vinnur með mið-þjóvöðva og mjaðmar- og lundarvöðva við að beygja og fráfæra lærið. Hann aðstoðar einnig við að gera hliðlægan hluta hnésins stöðugan með því að toga í mjaðmar- og sköflungsbandið og spenna það. Djúpt við stærsta þjóvöðvann liggja peruvöðvi, innri og ytri mjaðmargatsvöðvi, efri og neðri tvíburavöðvi og ferhyrnuvöðvi læris. Þeir snúa lærleggnum út um mjaðmarlið.
Langur, stuttur og stór aðfærsluvöðvi geta snúið lærinu bæði inn og út eftir stöðu fótarins. Langi aðfærsluvöðvinn beygir lærið en sá stóri réttir það. Kambsvöðvinn aðfærir lærlegginn og beygir hann um mjöðm. Hann liggur í lærþríhyrningnum, sem myndast á mótum mjaðmar og læris. Þar liggja einnig lærtaug, lærslagæð, lærbláæð og djúpir nárseitlar.
Lærvöðvar sem hreyfa lærlegg, sköflung og dálk
Djúpt fell skiptir lærinu í miðlægt, fremra og aftara hólf (sjá mynd 11.29 og mynd 11.31). Vöðvar miðlæga hólfsins aðfæra lærlegginn um mjöðm. Auk langs, stutts og stórs aðfærsluvöðva og kambsvöðva aðfærir ólarlaga rengluvöðvinn lærið og beygir fótlegginn um hné.

Vöðvar fremra hólfs læris beygja lærið og rétta fótlegginn. Þar er fjórhöfðavöðvi læris, sem myndast af fjórum vöðvum er rétta hnéð og gera það stöðugt. Beinn lærvöðvi liggur framan á læri, hliðlægur víðfaðmavöðvi hliðlægt, miðlægur víðfaðmavöðvi miðlægt og milli-víðfaðmavöðvi milli hinna tveggja og djúpt við beina lærvöðvann. Sameiginleg sina þeirra er sin fjórhöfðavöðva læris, eða hnéskeljarsin. Hún festist við hnéskelina og heldur áfram neðan hennar sem hnéskeljarband, sem festist við sköflungshnjót. Auk fjórhöfðavöðvans liggur skraddaravöðvinn eins og band frá fremri efri mjaðmarbeinsnibbu að miðlægri hlið nærhluta sköflungs. Þessi fjölhæfi vöðvi beygir fótlegginn um hné og beygir, fráfærir og snýr lærinu út um mjöðm. Hann gerir okkur kleift að sitja með krosslagða fætur.
Í afturhólfi læris eru vöðvar sem beygja fótlegginn og rétta lærið. Langvöðvarnir þrír aftan við hné mynda hnésbótarvöðvahópinn, sem beygir hnéð. Þeir eru tvíhöfðavöðvi læris, hálfsinungsvöðvi og hálfhimnuvöðvi. Sinar þeirra afmarka hnésbótina, tígullaga rými aftan við hnéð.
Vöðvar sem hreyfa fætur og tær
Líkt og í lærinu skiptir djúpt fell vöðvum fótleggsins í hólf. Fótleggurinn hefur þrjú hólf: fremra, hliðlægt og aftara (mynd 11.32 og mynd 11.33).


Vöðvar framhólfs fótleggsins eru fremri sköflungsvöðvi, langur og þykkur vöðvi hliðlægt á sköflungi, langur réttivöðvi stórutáar djúpt við hann og langur réttivöðvi táa hliðlægt við þá. Þeir lyfta allir framhluta fótarins þegar þeir dragast saman. Þriðji dálksvöðvinn er lítill vöðvi sem á upptök framan á dálki. Hann tengist löngum réttivöðva táa og er stundum samvaxinn honum en er ekki til staðar hjá öllum. Þykk bandvefsbönd sem nefnast efra réttivöðvasinahald, einnig nefnt þverband ökkla, og neðra réttivöðvasinahald halda sinum þessara vöðva á sínum stað við ristarbeygju.
Í hliðlægu hólfi fótleggs eru tveir vöðvar: langur dálksvöðvi og stuttur dálksvöðvi. Yfirborðslægir vöðvar afturhólfs fótleggs festast allir við hásinina, einnig nefnda Akkillesarsin, sterka sin sem festist við hælbein ökklans. Vöðvar hólfsins eru stórir og sterkir og halda mannslíkamanum uppréttum. Kálfavöðvinn er yfirborðslægasti og sýnilegasti vöðvi kálfans. Djúpt við hann liggur breiður og flatur sólavöðvinn. Iljarvöðvinn liggur skáhallt milli þeirra. Sumir hafa tvo iljarvöðva en í um sjö prósent krufninga finnst enginn. Sin iljarvöðvans hentar vel í stað lærfells við viðgerð kviðslits, sinaígræðslu og viðgerð liðbanda. Í afturhólfi fótleggs eru einnig fjórir djúplægir vöðvar: hnésbótarvöðvi, langur beygivöðvi táa, langur beygivöðvi stórutáar og aftari sköflungsvöðvi.
Í fætinum eru einnig innri vöðvar sem eiga bæði upptök og festu innan hans, líkt og innri handarvöðvar. Þeir styðja fyrst og fremst fótinn og fótabogann og taka þátt í hreyfingum táa (mynd 11.34 og mynd 11.35). Helsti stuðningur langbogans er djúpt fell sem nefnist iljarsinafell og liggur frá hælbeini til táa. Bólga í því veldur iljafellsbólgu, sem getur hrjáð hlaupara. Innri fótarvöðvum er skipt í tvo hópa. Í ristlægum hópi er aðeins einn vöðvi, stuttur réttivöðvi táa. Hinn hópurinn er iljarlægi hópurinn, sem skiptist í fjögur lög frá því yfirborðslægasta.

