11.4 Ásvöðvar kviðveggjar og brjóstgrindar
11.4 Ásvöðvar kviðveggjar og brjóstgrindar
Námsmarkmið
Eftir að hafa kynnt þér efni þessa kafla átt þú að geta:
- Borið kennsl á innlæga beinagrindarvöðva baks og háls og beinagrindarvöðva kviðveggjar og brjóstgrindar
- Greint hreyfingar og hlutverk innlægra beinagrindarvöðva baks og háls og beinagrindarvöðva kviðveggjar og brjóstgrindar
Það er flókið verkefni að halda líkamanum í jafnvægi á tveimur fótum og ganga uppréttur. Vöðvar hryggsúlu, brjóstgrindar og kviðveggjar rétta, beygja og gera ólíka hluta bolsins stöðuga. Djúpir kjarnavöðvar líkamans viðhalda líkamsstöðu auk þess að gegna öðrum hlutverkum. Heilinn sendir rafboð til þessara ólíku vöðvahópa og stjórnar líkamsstöðunni með því að láta þá dragast saman og slaka til skiptis. Þetta er nauðsynlegt svo enginn einstakur vöðvahópur þreytist of fljótt. Ef einhver hópurinn starfar ekki rétt skerðist líkamsstaðan.
Vöðvar kviðar
Fjögur pör kviðvöðva þekja fremra og hliðlægt kviðsvæðið og mætast við fremri miðlínu. Þessum vöðvum fram- og hliðlægs kviðveggjar má skipta í fjóra hópa: ytri skávöðva kviðar, innri skávöðva kviðar, kviðarþvervöðva og beina kviðvöðva (mynd 11.16 og tafla 11.6).

| Hreyfing | Hreyfður líkamshluti | Hreyfistefna líkamshluta | Aðalhreyfivöðvi | Upptök | Festa |
|---|---|---|---|---|---|
| Snúningur um mitti og hliðarbeygja | Hryggsúla | Snúningur; hliðarbeygja | Ytri skávöðvar kviðar; innri skávöðvar kviðar | Rifbein 5–12; mjaðmarbein | Rifbein 7–10; hvítalína; mjaðmarbein |
| Kviður þrýstur saman við kröftuga útöndun, hægðalosun, þvaglát og fæðingu | Kviðarhol | Samþjöppun | Kviðarþvervöðvi | Mjaðmarbein; rifbein 5–10 | Bringubein; hvítalína; klyftabein |
| Sest upp úr liggjandi stöðu | Hryggsúla | Beygja | Beinn kviðvöðvi | Klyftabein | Bringubein; rifbein 5 og 7 |
| Hliðarbeygja | Hryggsúla | Hliðarbeygja | Ferhyrnuvöðvi lenda | Mjaðmarbein; rifbein 5–10 | Rifbein 12; lendahryggjarliðir L1–L4 |
Þrír flatir beinagrindarvöðvar liggja í fram- og hliðlægum kviðveggnum. Ytri skávöðvi kviðar liggur næst yfirborði og þræðir hans stefna niður og miðlægt, líkt og þegar fjórum fingrum er rennt í buxnavasa. Hornrétt á hann liggur innri skávöðvi kviðar í miðlaginu. Þræðir hans stefna upp og miðlægt, í sömu átt og þumlarnir stefna yfirleitt þegar hinir fingurnir eru í buxnavösunum. Djúpi vöðvinn, kviðarþvervöðvinn, liggur þvert um kviðinn líkt og fremri hluti buxnabeltis. Þessi skipan þriggja vöðvalaga með ólíka stefnu gerir margvíslegar hreyfingar og snúning bolsins möguleg. Vöðvalögin þrjú verja einnig innri líffæri kviðar á svæði þar sem engin bein eru til varnar.
Hvítalínan er hvítur trefjaborði sem myndast þar sem slíðrin um beina kviðvöðvana beggja vegna renna saman við fremri miðlínu líkamans. Slíðrin umlykja beina kviðvöðvana, sem eru par langra, línulaga vöðva og gjarnan kenndir við það að setjast upp úr liggjandi stöðu. Þeir eiga upptök á klyftakambi og klyftasambryskju og liggja endilangt eftir bolnum. Hvor vöðvi skiptist í hluta með þremur þverlægum kollagenþráðaböndum sem nefnast sinaskil. Af því stafar útlit svonefnds „þvottabrettis“ þegar einstakir vöðvahlutar stækka hjá fólki sem gerir margar magaæfingar.
Aftari kviðveggurinn myndast af lendahryggjarliðum, hlutum mjaðmarbeina, stærri lundarvöðva, mjaðmarvöðva og ferhyrnuvöðva lenda. Þessi hluti kjarnavöðvanna gegnir lykilhlutverki við að gera líkamann stöðugan og viðhalda líkamsstöðu.
Vöðvar brjóstgrindar
Vöðvar brjóstgrindarinnar auðvelda öndun með því að breyta stærð brjóstholsins (tafla 11.7). Við innöndun lyftist brjóstkassinn vegna þess að brjóstholið stækkar. Við útöndun sígur hann hins vegar vegna þess að rúmmál brjóstholsins minnkar.
| Hreyfing | Hreyfður líkamshluti | Hreyfistefna líkamshluta | Aðalhreyfivöðvi | Upptök | Festa |
|---|---|---|---|---|---|
| Innöndun; útöndun | Brjósthol | Samþjöppun; útvíkkun | Þind | Bringubein; rifbein 6–12; lendahryggjarliðir | Miðsina þindar |
| Innöndun; útöndun | Rifbein | Lyfting (víkkar brjóstholið) | Ytri millirifjavöðvar | Rifbeinið ofan við hvern millirifjavöðva | Rifbeinið neðan við hvern millirifjavöðva |
| Kröftug útöndun | Rifbein | Hreyfing eftir efri–neðri ás sem færir rifbeinin nær hvert öðru | Innri millirifjavöðvar | Rifbeinið neðan við hvern millirifjavöðva | Rifbeinið ofan við hvern millirifjavöðva |
Þindin
Breytingin á rúmmáli brjóstholsins við öndun stafar af því að þindin dregst saman og slaknar til skiptis (mynd 11.17). Hún skilur að brjósthol og kviðarhol og er hvolflaga í hvíld. Efra yfirborð hennar er kúpt og myndar upphækkaðan botn brjóstholsins. Neðra yfirborðið er íhvolft og myndar sveigt þak kviðarholsins.

Hægðalosun, þvaglát og jafnvel fæðing krefjast samvinnu þindar og kviðvöðva. Þessi samvinna nefnist Valsalva-aðferð. Andanum er haldið með stöðugum samdrætti þindarinnar og þannig helst rúmmál og þrýstingur lífhimnuholsins stöðugur. Þegar kviðvöðvarnir dragast saman getur þrýstingurinn ekki ýtt þindinni upp. Hann eykur því þrýsting á meltingarveginn við hægðalosun, þvagvegina við þvaglát eða æxlunarveginn við fæðingu.
Neðra yfirborð gollurshússins og neðri yfirborð fleiðranna, veggfleiðranna, renna saman við miðsina þindarinnar. Beggja vegna sinarinnar liggja beinagrindarvöðvahlutar þindarinnar. Þeir festast í sininni en eiga upptök á mörgum stöðum, þar á meðal á flagbrjóski bringubeinsins að framan, sex neðstu rifbeinunum og rifjabrjóskum þeirra til hliðanna og lendahryggjarliðum og 12. rifbeinunum að aftan.
Í þindinni eru einnig þrjú op sem líffærahlutar liggja um milli brjósthols og kviðarhols. Neðri holæð liggur um holæðaropið, en vélindað og tengdar taugar um vélindisopið. Ósæð, brjóstgangur og stakbláæð liggja um ósæðaropið aftarlega í þindinni.
Millirifjavöðvar
Þrjú sett vöðva, sem nefnast millirifjavöðvar, liggja yfir hvert millirifjabil. Meginhlutverk þeirra er að aðstoða við öndun með því að breyta stærð brjóstkassans (mynd 11.18).

Hin 11 yfirborðslægu pör ytri millirifjavöðva aðstoða við innöndun. Þegar vöðvarnir dragast saman lyfta þeir brjóstkassanum og víkka hann. Hin 11 pör innri millirifjavöðva, sem liggja rétt undir þeim ytri, eru virk við útöndun því þau draga rifbeinin saman og þrengja brjóstkassann. Innstu millirifjavöðvarnir liggja dýpst og verka sem samverkandi vöðvar með innri millirifjavöðvunum.
Vöðvar grindarbotns og spangar
Grindarbotninn er vöðvaþynna sem afmarkar neðsta hluta grindarholsins. Grindarþindin nær frá klyftabeini að framan að rófubeini að aftan og myndast af lyftivöðva endaþarms og rófuvöðva. Um op hennar liggja endaþarmsgöng og þvagrás og hjá konum einnig leggöng.
Hinn stóri lyftivöðvi endaþarms myndast af tveimur beinagrindarvöðvum, klyfta- og rófuvöðva og mjaðmar- og rófuvöðva (mynd 11.19). Lyftivöðvi endaþarms er talinn mikilvægasti vöðvi grindarbotnsins því hann styður við grindarholslíffærin. Hann vinnur gegn þrýstingnum sem myndast við samdrátt kviðvöðvanna svo þrýstingurinn beinist að ristlinum og auðveldi hægðalosun og að leginu og auðveldi fæðingu. Rófuvöðvinn aðstoðar með því að draga rófubeinið fram. Lyftivöðvinn myndar einnig þrengivöðva úr beinagrindarvöðvavef við þvagrás og endaþarmsop.

Spöngin er tígullaga svæði milli klyftasambryskju að framan, rófubeins að aftan og setbeinshrjóna til hliðanna. Hún liggur rétt neðan grindarþindarinnar, það er lyftivöðva endaþarms og rófuvöðva. Þverlína skiptir spönginni í tvo þríhyrninga. Fremri hlutinn er þvag- og kynfæraþríhyrningurinn, sem inniheldur ytri kynfæri. Aftari hlutinn er endaþarmsþríhyrningurinn, sem inniheldur endaþarmsopið (mynd 11.20). Spöngin skiptist einnig í yfirborðslægt og djúpt lag og sumir vöðvarnir eru sameiginlegir fólki af öllum kynjum (mynd 11.21). Konur hafa auk þess þvagrásarþrýstivöðva, compressor urethrae, og þvagrásar- og leggangnaþrengivöðva, sphincter urethrovaginalis, sem loka leggöngunum. Hjá körlum tekur djúpur þvervöðvi spangar þátt í sáðláti.

