66 Landnám og efnahagsleg útþensla
Upprifjunarspurningar
Upprifjunarspurningar
1.
Hvernig voru fyrstu ensku byggðirnar aðallega fjármagnaðar?
- með framlögum úr konungssjóði
- fyrir milligöngu hlutafélaga
- með gjöfum frá Hinriki V konungi
- með sköttum sem biskupsdæmið í Kantaraborg innheimti
2.
Hvernig var sambandi nýlendna í Ameríku við móðurríki þeirra yfirleitt háttað eftir stofnun þeirra?
- Nýlendurnar reiddu sig á móðurríkin varðandi aðföng og efnahagslegan stuðning.
- Nýlendurnar urðu algerlega sjálfstæðar.
- Nýlendurnar gengu til liðs við keppinautaveldi.
- Nýlendurnar virtu móðurríkin að vettugi.
3.
Hvers vegna heitir borgin sem áður var kölluð Nýja-Amsterdam nú New York?
- Íbúar borgarinnar kusu að endurnefna hana hertoganum af York til heiðurs.
- Leiðtogar borgarinnar breyttu nafninu eftir að jarlinn af York fjárfesti í henni.
- Kaþólska kirkjan breytti nafninu á kortum til heiðurs heilögum York.
- Englendingar endurnefndu borgina eftir að þeir náðu henni af Hollendingum.
4.
Hvað skýrir tiltölulega friðsamlegt samband franskra nýlendubúa og frumbyggja Kanada?
- Frakkar máttu ekki við því að reita frumbyggja til reiði, enda aðstoðuðu frumbyggjarnir þá við öflun loðskinna.
- Frakkar töldu frumbyggja Kanada fúsa til að taka kristna trú.
- Frakkar áttu lítil samskipti við frumbyggja og héldu sig innan eigin byggða.
- Flestir frumbyggjar Kanada dóu úr bólusótt og því gátu Frakkar auðveldlega náð yfirráðum yfir þeim.
5.
Hver var ein meginorsök Sjö ára stríðsins?
- eyðilegging Breska rajsins
- reglusetning um ópíum í Kína
- dauði Loðvíks XV Frakkakonungs
- vaxandi samkeppni milli Evrópuvelda
6.
Hver var meginástæða þess að Breska rajið var stofnað?
- mistök Breska Austur-Indíafélagsins við að koma í veg fyrir óeirðir á Indlandi
- uppgangur byltingarhreyfinga í Kína
- þörfin á auknum skatttekjum til að styðja nýlenduvæðingu Breta í Afríku
- fall breska konungsveldisins
7.
Með hvaða kerfi stjórnaði Qing-ættin viðskiptum?
- Raj-kerfinu
- Ndongo-kerfinu
- Kanton-kerfinu
- samningakerfinu
8.
Hver var ein afleiðing viðskiptastefnu Qing-ættarinnar?
- Kína naut um tíma hagstæðs viðskiptajafnaðar.
- Bretar neyddust til að beina sjónum að nýlendum sínum í Norður-Ameríku.
- Kína gat náð pólitískum og hernaðarlegum yfirráðum yfir Japan.
- Frakkar biðu ósigur í Sjö ára stríðinu.
9.
Við hvaða tegund verslunar var andspyrna Afríkubúa gegn nýlenduvæðingu Evrópumanna oft viðbragð?
- ópíumverslun
- þrælaverslun
- vefnaðarvöruverslun
- álverslun
10.
Hvað var Filippusarstríðið?
- uppreisn Frakka gegn nýlenduvæðingu Spánverja
- viðskiptastríð Kínverja gegn ítalskri kaupauðgisstefnu
- uppreisn frumbyggja Ameríku gegn nýlenduvæðingu Englendinga
- trúarstríð múslima gegn hollenskum trúboðum
11.
Hver er einn munur á kaupauðgisstefnu og kapítalisma?
- Kaupauðgisstefna styður yfirleitt víðtækara regluverk stjórnvalda en kapítalismi.
- Kaupauðgisstefna styður yfirleitt lægri skatta en kapítalismi.
- Kaupauðgisstefna styður yfirleitt meiri réttindi verkafólks en kapítalismi.
- Kaupauðgisstefna styður yfirleitt frjálsari viðskipti en kapítalismi.
12.
Hvaða hugtak gæti átt við um matreiðslumann sem opnar nýjan veitingastað í von um að auðgast en gagnast um leið samfélaginu með því að ráða starfsfólk og framreiða nágrönnum sínum mat?
- uppreisn öreigastéttarinnar
- ósýnilega höndin
- vöxtur iðnvæðingar
- dauði kaupauðgisstefnunnar
13.
Hugmyndir Adams Smith byggjast á þeirri trú að fólk sé yfirleitt ________.
- auðugt
- iðnjöfrar
- skynsamt
- trúað
14.
Hvað nefnist framleiðsla vara á heimilum sem einkenndi fyrstu ár iðnbyltingarinnar?
- kaupauðgisstefna
- kapítalismi
- laissez-faire-stefna
- heimilisiðnaður