Kynning – Mannkynssaga I: fram til 1500 (IS) | Námsgögn
1616 Loftslagsbreytingar og plága á fjórtándu öld
Kynning
Mynd 16.1. Með hjálp nútíma vísindatækja hafa leifar fórnarlamba kýlapestar á fjórtándu öld, á borð við þau sem verið er að jarðsetja á þessari mynd, veitt mikla innsýn í gang og áhrif sögulegra heimsfaraldra og afleiðingar þeirra fyrir mannlegt samfélag til skamms og langs tíma. Málverkið er smámynd úr handriti frá miðri fjórtándu öld. (Mynd: aðlagað eftir verkinu „Gilles li Muisis, Antiquitates Flandriae (Tractatus quartus)“ eftir Belgian Art Links and Tools/Wikimedia Commons, almenningseign)
Loftslagsbreytingar, heimsfaraldrar og pólitísk umbrot kunna að virðast frekar einkenna nútímann en fyrri tíma. Á fyrstu áratugum fjórtándu aldar urðu slík áföll þó hvert á fætur öðru og sagnfræðingurinn Barbara Tuchman nefndi því tímabilið „hina hörmunglegu fjórtándu öld“ í bók sinni A Distant Mirror. Á fjórtándu öld glímdi mannkynið við óvenjulega margar áskoranir, allt frá hörmungum hinnar svokölluðu litlu ísaldar og kýlapestarinnar (Mynd 16.1) til hraðrar hnignunar hins áður volduga Mongólaveldis. Þær gjörbreyttu ekki aðeins lýðfræðilegu og pólitísku landslagi heimsins heldur sýndu jafnframt hve seig mannleg samfélög geta verið.
Þótt hver og ein þessara hamfara hefði getað lagt samfélögin sem fyrir þeim urðu í rúst lagaði fólk sig að aðstæðum, náði sér og byggði upp að nýju í öllum tilvikum. Þrautseigja þess gerir fjórtándu öldina að óvenju verðmætu viðfangsefni fyrir sagnfræðinga sem vilja skilja mikilvæga þætti mannlegrar reynslu, svo sem áhrif umhverfisbreytinga, smitsjúkdóma og eyðileggingar hernaðarátaka.
Mynd 16.2. (Mynd „1250“: aðlagað eftir verkinu „The Elephant Clock, Folio from a Book of the Knowledge of Ingenious Mechanical Devices by al-Jazari“, gjöf Cora Timken Burnett, 1956/Metropolitan Museum of Art, almenningseign; mynd „1279“: aðlagað eftir „Yuan Emperor Album Khubilai Portrait“ eftir National Palace Museum/Wikimedia Commons, almenningseign; mynd „1315–1317“: aðlagað eftir „Death (‘Mors’) sits astride a lion whose long tail ends in a ball of flame (Hell). Famine (‘Fames’) points to her hungry mouth“ eftir „Mariule“/Wikimedia Commons, almenningseign; mynd „1340–1350“: aðlagað eftir „Gilles li Muisis, Antiquitates Flandriae (Tractatus quartus)“ eftir Belgian Art Links and Tools/Wikimedia Commons, almenningseign; mynd „1368“: aðlagað eftir „Official court painting of the Hongwu Emperor“ eftir óþekktan höfund/Wikimedia Commons, almenningseign)