Spurningar um persónulega hagnýtingu
Spurningar um persónulega hagnýtingu
Hvernig myndir þú lýsa eigin persónuleika? Heldur þú að vinir og fjölskylda myndu lýsa þér á svipaðan hátt? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Hvernig myndir þú lýsa persónuleika þínum í stefnumótaprófíl á netinu?
Hvaða jákvæðu og neikvæðu persónuleikaeiginleika telur þú þig hafa? Hvernig heldur þú að þessir eiginleikar muni hafa áhrif á starfsval þitt?
Nefndu dæmi um varnarhætti sem þú hefur sjálf/ur notað eða séð aðra nota.
Hver er staða þín í systkinaröðinni? Ertu sammála eða ósammála lýsingu Adlers á persónuleika þínum út frá kenningu hans um systkinaröð, eins og henni er lýst í Tengli á námsefni? Nefndu dæmi til stuðnings.
Myndir þú lýsa þér sem úthverfri eða innhverfri manneskju? Er það breytilegt eftir aðstæðum? Nefndu dæmi til stuðnings.
Veldu söguefni af epískum toga sem er vinsælt í samtímanum, til dæmis Harry Potter eða Star Wars, og útskýrðu það út frá hugtaki Jungs um frummyndir.
Hefur þú innri eða ytri stjórnrót? Nefndu dæmi til stuðnings svari þínu.
Svaraðu spurningunni: „Hver er ég?“ Hefur þú neikvæða eða jákvæða sjálfsmynd, miðað við svarið? Hvaða reynsla leiddi til þess að þú þróaðir þessa tilteknu sjálfsmynd?
Rannsóknir benda til þess að margir persónuleikaþættir okkar hafi erfðafræðilegan þátt. Hvaða eiginleika heldur þú að þú hafir erft frá foreldrum þínum? Nefndu dæmi. Hvernig gæti herminám, það er umhverfið, einnig haft áhrif á eiginleika þína?
Skoðaðu persónuleikaþættina stóru fimm sem sýndir eru á mynd 11.14. Á hvaða sviðum myndir þú búast við að skora hátt? Á hvaða sviðum lýsir lágt skor þér betur?
Samkvæmt rannsóknum Rentfrow og félaga dreifast persónuleikar ekki af handahófi. Þess í stað falla þeir í aðgreinda landfræðilega klasa. Ertu sammála eða ósammála þeim eiginleikum sem tengdir eru þér og íbúum svæðisins þar sem þú býrð? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Hversu hlutlæg/ur heldur þú að þú getir verið gagnvart sjálfri/sjálfum þér þegar þú svarar spurningum í sjálfsmatskönnunum um persónuleika? Hvaða áhrif gæti þetta haft á réttmæti persónuleikaprófsins?