Myndbandsverkefni
Kennitölugreining - takmarkanir kennitalna
Kennitölugreining - takmarkanir kennitalna
1.Í myndbandinu fjallar Jim um fjórar helstu takmarkanir kennitalna: áreiðanleika, samanburðarhæfni, notkun aðeins einnar gagnaheimildar og notkun sögulegra upplýsinga. Hvaða takmörkun telur þú alvarlegasta? Hvernig mætti vega upp á móti henni?
2.Jim fjallar einnig um atriði sem kennitölur ná ekki að sýna. Hvaða eiginleika fyrirtækis myndir þú helst vilja þekkja áður en þú fjárfestir en getur ekki lesið úr kennitölum? Hvernig myndirðu afla þeirra upplýsinga ef reikningsskil og kennitölugreining duga ekki?
Vandinn við hagnað á hlut (EPS)
Vandinn við hagnað á hlut (EPS)
3.Hvaða helstu kosti telur Zach DeGregorio felast í notkun EPS við fjárhagsgreiningu og hvaða atriði telur hann helst valda vandkvæðum?
4.Þegar þú hefur horft á myndbandið og tekið saman kosti og annmarka EPS skaltu meta gagnsemi kennitölunnar. Ættu fjárfestar að nota hana? Rökstyddu svarið. Myndirðu nota EPS-gögn í ákvörðunarferlinu ef þú hygðist fjárfesta háa fjárhæð í fyrirtæki? Rökstyddu einnig það svar.