Upprifjunarspurningar
Upprifjunarspurningar
1.
Er fyrri árangur góð vísbending um árangur í framtíðinni?
2.
Veltuhraði birgða hjá Reiðtygjabúðinni Fola mældist 12,8, 12,2 og 9,9 á síðustu þremur árum, í þeirri röð. Hvað segir þessi þróun um birgðastýringu stjórnendateymis Reiðtygjabúðarinnar Fola?
3.
Veltuhraði heildareigna hjá Reiðtygjabúðinni Fola mældist 1,8, 2,1 og 2,4 á síðustu þremur árum, í þeirri röð. Hvað segir þessi þróun um nýtingu stjórnendateymisins á heildareignum fyrirtækisins?
4.
Birgðadagar Stórbúðarinnar hf. mældust 30, 32 og 34 á síðustu þremur árum. Hjá Smábúðinni hf. mældust þeir 40, 38 og 36 á sama tímabili. Hvað má ráða af þróuninni um birgðastýringu fyrirtækjanna? Hvort þeirra stendur sig betur?
5.
Veltufjárhlutfall Þurrkjötsbúðar Jacksons er 2,35. Hvað merkir það? Telst 2,35 gott eða slæmt veltufjárhlutfall?
6.
Lausafjárhlutfall Þurrkjötsbúðar Jacksons er 1,9. Hvað merkir það? Telst 1,9 gott eða slæmt lausafjárhlutfall?
7.
Hlutfall handbærs fjár hjá Þurrkjötsbúð Jacksons er 1,75. Hvað merkir það? Telst 1,75 gott eða slæmt hlutfall handbærs fjár?
8.
Þú átt fé sem þú vilt fjárfesta. Finndu á netinu tvö skráð fyrirtæki í sömu atvinnugrein og berðu saman hagnað þeirra á hlut. Myndi hagnaður á hlut sem hvort fyrirtæki gefur upp hafa áhrif á það í hvoru þeirra þú fjárfestir?
9.
Markaðsvirði á hlut í fyrirtæki A er 19,55 en bókfært virði á hlut 12,79. Hvaða ályktun myndir þú sem fjárfestir draga um núverandi virði hlutabréfanna?
10.
V/H-hlutfall fyrirtækis B er 21,2 en meðaltal atvinnugreinarinnar 20,75. Hvaða ályktun gæti fjárfestir dregið af samanburðinum þegar hann metur hvort fjárfesta eigi í fyrirtæki B?
11.
Hverjir eru meginþættir DuPont-formúlunnar og hvernig auðvelda þeir greinendum að meta fyrirtæki?