Verkefni
Verkefni
Skoðaðu mynd 3.4 aftur. Gerum ráð fyrir að bensínverð sé 1,00 Bandaríkjadalur á gallon. Er eftirspurt magn þá meira eða minna en við jafnvægisverðið 1,40 Bandaríkjadalir á gallon? Er framboðið magn meira eða minna? Myndast skortur eða offramboð á markaðnum og hve mikið?
Tafla 3.8 sýnir eftirspurn og framboð á reiðhjólamarkaði. Magnið er gefið upp í þúsundum reiðhjóla.
| Verð (Bandaríkjadalir) | Eftirspurt magn | Framboðið magn |
|---|---|---|
| 120 | 50 | 36 |
| 150 | 40 | 40 |
| 180 | 32 | 48 |
| 210 | 28 | 56 |
| 240 | 24 | 70 |
- Hvert er eftirspurt magn og framboðið magn þegar verðið er 210 Bandaríkjadalir?
- Við hvaða verð er framboðið magn 48.000?
- Teiknaðu eftirspurnar- og framboðsferla fyrir reiðhjól. Hvernig finnur þú jafnvægisverð og jafnvægismagn á myndritinu? Hvernig finnur þú þau í töflunni? Hvert er jafnvægisverðið og jafnvægismagnið?
- Ef verðið væri 120 Bandaríkjadalir, hvert væri eftirspurt magn og framboðið magn? Myndaðist skortur eða offramboð? Hve mikill væri skorturinn eða hve mikið væri offramboðið?
Á undanförnum árum hafa mun fleiri tölvur selst, jafnframt því sem verð þeirra hefur lækkað verulega. Hvaða hliðrun eftirspurnar eða framboðs er líklegust til að skýra þessa þróun? Skissaðu eftirspurnar- og framboðsmyndrit og rökstuddu niðurstöðuna.
- Aukin eftirspurn
- Minni eftirspurn
- Aukið framboð
- Minna framboð
Tafla 3.9 sýnir eftirspurn og framboð á markaði fyrir cheddarost. Settu gögnin fram á myndriti og finndu markaðsjafnvægið. Búðu síðan, fyrir hvort tilvik hér á eftir, til töflu sem sýnir breytinguna á eftirspurtu eða framboðnu magni og myndrit sem sýnir nýja jafnvægið:
- Verð á mjólk, mikilvægu aðfangi við ostaframleiðslu, hækkar. Framboðið minnkar því um 80 pund við hvert verð.
- Ný rannsókn bendir til þess að ostneysla sé holl og eftirspurn eykst því um 20% við hvert verð.
| Verð á pund (Bandaríkjadalir) | Eftirspurt magn | Framboðið magn |
|---|---|---|
| 3,00 | 750 | 540 |
| 3,20 | 700 | 600 |
| 3,40 | 650 | 650 |
| 3,60 | 620 | 700 |
| 3,80 | 600 | 720 |
| 4,00 | 590 | 730 |
Tafla 3.10 sýnir framboð og eftirspurn eftir kvikmyndamiðum í borg. Settu ferlana fram á myndriti og finndu markaðsjafnvægið. Reiknaðu síðan áhrif breytinganna tveggja hér á eftir í töflu og sýndu þau á myndriti.
- Þrír nýir skemmtistaðir opna. Þar koma fram ágætar hljómsveitir og enginn aðgangseyrir er innheimtur, en tekjurnar koma af sölu matar og drykkja. Fyrir vikið minnkar eftirspurn eftir kvikmyndamiðum um sex einingar við hvert verð.
- Borgaryfirvöld afnema skatt sem lagður hafði verið á öll skemmtanafyrirtæki á staðnum. Fyrir vikið eykst framboðið magn kvikmyndamiða um 10% við hvert verð.
| Miðaverð (Bandaríkjadalir) | Eftirspurt magn | Framboðið magn |
|---|---|---|
| 5,00 | 26 | 16 |
| 6,00 | 24 | 18 |
| 7,00 | 22 | 20 |
| 8,00 | 21 | 21 |
| 9,00 | 20 | 22 |
Tekjulágt ríki ákveður að setja verðþak á brauð til að tryggja að fólk með lágar tekjur hafi efni á því. Tafla 3.11 sýnir eftirspurn og framboð. Hvert er jafnvægisverðið og jafnvægismagnið áður en verðþakið er sett? Hve mikil verður umframeftirspurnin, eða skorturinn, það er eftirspurt magn að frádregnu framboðnu magni, ef verðþakið er 2,40 Bandaríkjadalir? En við 2,00 Bandaríkjadali? En við 3,60 Bandaríkjadali?
| Verð (Bandaríkjadalir) | Eftirspurt magn | Framboðið magn |
|---|---|---|
| 1,60 | 9.000 | 5.000 |
| 2,00 | 8.500 | 5.500 |
| 2,40 | 8.000 | 6.400 |
| 2,80 | 7.500 | 7.500 |
| 3,20 | 7.000 | 9.000 |
| 3,60 | 6.500 | 11.000 |
| 4,00 | 6.000 | 15.000 |