11 Föll
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- algilt hágildi
- hæsta gildi falls á bili
- algilt lággildi
- lægsta gildi falls á bili
- tölugildisjafna
- jafna á forminu þar sem hún hefur lausnir þegar eða
- tölugildisójafna
- vensl á forminu
- meðalbreytingarhraði
- mismunur úttaksgilda falls fyrir tvö inntaksgildi deildur með mismun inntaksgildanna
- samskeytt fall
- nýtt fall sem myndast við samskeytingu falla þegar úttak eins falls er notað sem inntak annars
- minnkandi fall
- fall er minnkandi á opnu bili ef fyrir sérhver tvö inntaksgildi og á bilinu þar sem
- háð breyta
- úttaksbreyta
- skilgreiningarmengi
- mengi allra mögulegra inntaksgilda vensla
- jafnstætt fall
- fall með graf sem breytist ekki við lárétta speglun, og er samhverft um ásinn
- fall
- vensl þar sem hvert inntaksgildi gefur nákvæmlega eitt úttaksgildi
- lárétt samþjöppun
- ummyndun sem þjappar grafi falls saman lárétt með því að margfalda inntakið með fasta
- lárétta línuprófið
- aðferð til að prófa hvort fall sé eintækt með því að kanna hvort einhver lárétt lína skeri grafið oftar en einu sinni
- lárétt speglun
- ummyndun sem speglar graf falls um y-ásinn með því að margfalda inntakið með
- lárétt hliðrun
- ummyndun sem hliðrar grafi falls til vinstri eða hægri með því að leggja jákvæðan eða neikvæðan fasta við inntakið
- lárétt teygja
- ummyndun sem teygir graf falls lárétt með því að margfalda inntakið með fasta
- vaxandi fall
- fall er vaxandi á opnu bili ef fyrir sérhver tvö inntaksgildi og á bilinu þar sem
- óháð breyta
- inntaksbreyta
- inntak
- hvert stak eða gildi í skilgreiningarmengi sem tengist öðru staki eða gildi með venslum sem kallast fall
- biltákn
- aðferð til að lýsa mengi sem inniheldur allar tölur milli neðra og efra marks; mörkin eru rituð milli hornklofa eða sviga, þar sem hornklofi táknar að markið tilheyri menginu en svigi að það tilheyri því ekki
- andhverft fall
- fyrir sérhvert eintækt fall er andhverfan fall þannig að fyrir öll í skilgreiningarmengi af þessu leiðir einnig að fyrir öll í skilgreiningarmengi
- staðbundin útgildi
- sameiginlegt heiti allra staðbundinna hágilda og lággilda falls
- staðbundið hágildi
- inntaksgildi þar sem fall breytist úr því að vera vaxandi í að vera minnkandi þegar inntaksgildið hækkar
- staðbundið lággildi
- inntaksgildi þar sem fall breytist úr því að vera minnkandi í að vera vaxandi þegar inntaksgildið hækkar
- oddstætt fall
- fall með graf sem breytist ekki við samsetta lárétta og lóðrétta speglun, og er samhverft um upphafspunkt hnitakerfisins
- eintækt fall
- fall þar sem hvert úttaksgildi tengist nákvæmlega einu inntaksgildi
- úttak
- hvert stak eða gildi í myndmengi sem fæst þegar inntaksgildi er sett inn í fall
- hlutskilgreint fall
- fall þar sem fleiri en ein formúla er notuð til að skilgreina úttakið
- myndmengi
- mengi úttaksgilda sem fást úr inntaksgildum vensla
- breytingarhraði
- breyting úttaksstærðar miðað við breytingu inntaksstærðar
- vensl
- mengi raðaðra para
- skilyrðisritháttur mengja
- aðferð til að lýsa mengi með reglu sem öll stök þess uppfylla; hún er á forminu
- lóðrétt samþjöppun
- ummyndun falls sem þjappar grafi þess saman lóðrétt með því að margfalda úttakið með fasta
- lóðrétta línuprófið
- aðferð til að prófa hvort graf sýni fall með því að kanna hvort lóðrétt lína skeri grafið í mesta lagi einu sinni
- lóðrétt speglun
- ummyndun sem speglar graf falls um x-ásinn með því að margfalda úttakið með
- lóðrétt hliðrun
- ummyndun sem hliðrar grafi falls upp eða niður með því að leggja jákvæðan eða neikvæðan fasta við úttakið
- lóðrétt teygja
- ummyndun sem teygir graf falls lóðrétt með því að margfalda úttakið með fasta