Teiknað graf línulegrar jöfnu með því að merkja punkta
Teiknað gröf lóðréttra og láréttra lína
Skilja samband lausna jöfnu og grafs hennar
Í kaflanum Notkun rétthyrnds hnitakerfis fundum við nokkrar lausnir jöfnunnar . Þær eru skráðar í töflunni hér fyrir neðan. Röðuðu tvenndirnar , , og eru því nokkrar lausnir jöfnunnar . Við getum merkt þessar lausnir inn á rétthyrnt hnitakerfi eins og sýnt er á grafinu til hægri.
Takið eftir að punktarnir liggja nákvæmlega á sömu línu. Við tengjum punktana með beinni línu og fáum þannig graf jöfnunnar . Takið eftir örvunum á báðum endum línunnar. Þær gefa til kynna að línan haldi áfram.
Sérhver punktur á línunni er lausn jöfnunnar. Jafnframt er sérhver lausn jöfnunnar punktur á línunni. Punktar sem liggja ekki á línunni eru ekki lausnir!
Takið eftir að punkturinn með hnitin liggur á línunni á mynd 11.8 . Ef þið setjið og inn í jöfnuna sjáið þið að raðaða tvenndin er lausn hennar.
Raðaða tvenndin er því ekki lausn jöfnunnar . Punkturinn liggur þar af leiðandi ekki á línunni.
Þetta er dæmi um máltækið „Mynd segir meira en þúsund orð.“ Línan sýnir allar lausnir jöfnunnar. Sérhver punktur á línunni er lausn jöfnunnar og sérhver lausn hennar liggur á línunni. Þessi lína kallast graf jöfnunnar .
Dæmi 11.15
Graf jöfnunnar er sýnt hér fyrir neðan.
Ákvarðið fyrir hverja raðaða tvennd:
ⓐ Er raðaða tvenndin lausn jöfnunnar?
ⓑ Liggur punkturinn á línunni?
(a) (0,–3)
(b) (3,3)
(c) (2,−3)
(d) (−1,−5)
Lausn
Setjið - og -gildin inn í jöfnuna til að athuga hvort raðaða tvenndin sé lausn hennar.
ⓐ
ⓑ Merkið punktana A: B: C: og D: . Punktarnir , og liggja á línunni en punkturinn liggur ekki á henni.
Punktarnir sem eru lausnir jöfnunnar liggja á línunni en punkturinn sem er ekki lausn liggur ekki á henni.
Teiknið graf línulegrar jöfnu með því að merkja punkta
Nota má nokkrar aðferðir til að teikna graf línulegrar jöfnu. Aðferðin sem við notuðum í upphafi þessa kafla felst í að merkja punkta inn á hnitakerfi og kallast punktaaðferðin.
Teiknum graf jöfnunnar með punktaaðferðinni.
Við byrjum á að finna þrjá punkta sem eru lausnir jöfnunnar. Við getum valið hvaða gildi sem er fyrir eða 𝑦 og leyst síðan með tilliti til hinnar breytunnar.
Þar sem er einangrað vinstra megin í jöfnunni er auðveldara að velja gildi fyrir Í þessu dæmi notum við og sem gildi . Við setjum hvert gildi inn í jöfnuna og leysum með tilliti til
Við getum sett lausnirnar skipulega fram í töflu. Sjá töflu 11.2 .
𝑦 = 2 𝑥 + 1 y = 2 x + 1
0 0
1 1
( 0 , 1 ) ( 0 , 1 )
1 1
3 3
( 1 , 3 ) ( 1 , 3 )
− 2 −2
− 3 −3
( − 2 , − 3 ) ( −2 , −3 )
− 2 −2
− 3 −3
( − 2 , − 3 ) ( −2 , −3 )
Nú merkjum við punktana inn á rétthyrnt hnitakerfi. Athugið að þeir liggi á sömu línu. Ef þeir gerðu það ekki hefði okkur orðið á villa og við þyrftum að fara vandlega yfir útreikningana. Sjá mynd 11.9 .
Dragið línu gegnum punktana þrjá. Framlengið hana yfir allt hnitakerfið og setjið ör á báða enda hennar. Línan er graf jöfnunnar
Tveir punktar nægja vissulega til að ákvarða línu en gott er að venja sig á að nota þrjá. Ef þið merkið aðeins tvo punkta og annar þeirra er rangur getið þið samt dregið línu, en hún mun ekki tákna lausnir jöfnunnar. Þá verður línan röng. Ef þið notið þrjá punkta og einn þeirra er rangur munu punktarnir ekki liggja á sömu línu. Það sýnir að eitthvað er að og að fara þurfi yfir útreikningana. Sjá mynd 11.11 .
Mynd 11.11. Berið saman (a) og (b). Allir þrír punktarnir í (a) liggja á sömu línu og því getum við dregið eina línu gegnum þá. Punktarnir þrír í (b) liggja ekki á sömu línu og því getum við ekki dregið eina beina línu gegnum þá alla.
Dæmi 11.16
Teiknið graf jöfnunnar
Lausn
Finnið þrjá punkta sem eru lausnir jöfnunnar. Auðveldara er að velja gildi fyrir 𝑥 og leysa með tilliti til Sjáið þið hvers vegna?
Skráið punktana í töflu.
𝑦 = − 3 𝑥 y = −3 x
0 0
0 0
( 0 , 0 ) ( 0 , 0 )
1 1
3 3
( 1 , − 3 ) ( 1 , −3 )
− 2 −2
6 6
( − 2 , 6 ) ( −2 , 6 )
− 2 −2
6 6
( − 2 , 6 ) ( −2 , 6 )
Merkið punktana inn, athugið að þeir liggi á sömu línu og dragið línuna eins og sýnt er.
Þegar stuðull 𝑥 í jöfnu er brot getum við sett hvaða tölur sem er í stað Reikningarnir verða þó auðveldari ef við veljum hentug gildi fyrir Þannig komumst við hjá brotalausnum sem erfitt er að merkja nákvæmlega inn á graf.
Dæmi 11.17
Teiknið graf jöfnunnar
Lausn
Finnið þrjá punkta sem eru lausnir jöfnunnar. Þar sem brotið er stuðull veljum við gildi af kostgæfni. Við veljum núll sem eitt gildið og margfeldi af sem hin gildin.
Punktarnir eru sýndir í töflunni.
𝑦 = 1 2 𝑥 + 3 y = 1/2 x + 3
0 0
3 3
( 0 , 3 ) ( 0 , 3 )
2 2
4 4
( 2 , 4 ) ( 2 , 4 )
4 4
5 5
( 4 , 5 ) ( 4 , 5 )
4 4
5 5
( 4 , 5 ) ( 4 , 5 )
Merkið punktana inn, athugið að þeir liggi á sömu línu og dragið línuna eins og sýnt er.
Hingað til hafa allar jöfnurnar sem við höfum teiknað gröf fyrir haft gefið sem fall af Nú teiknum við graf jöfnu þar sem og eru sömu megin við jafnaðarmerkið.
Dæmi 11.18
Teiknið graf jöfnunnar
Lausn
Finnið þrjá punkta sem eru lausnir jöfnunnar. Munið að þið getið byrjað á hvaða gildi sem er fyrir eða
Við skráum punktana í töflu.
𝑥 + 𝑦 = 5 x + y = 5
0 0
5 5
( 0 , 5 ) ( 0 , 5 )
1 1
4 4
( 1 , 4 ) ( 1 , 4 )
4 4
1 1
( 4 , 1 ) ( 4 , 1 )
4 4
1 1
( 4 , 1 ) ( 4 , 1 )
Merkið síðan punktana inn, athugið að þeir liggi á sömu línu og dragið línuna.
Í dæminu á undan var auðvelt að merkja punktana þrjá sem við fundum inn á graf. Það á þó ekki alltaf við. Skoðum hvað gerist í jöfnunni Ef er hvert er þá gildi
Lausnin er punkturinn Í punktinum er -hnitið brot. Þótt við gætum merkt punktinn inn er erfitt að staðsetja brot nákvæmlega á grafi. Munið að í dæminu völdum við gildi fyrir af kostgæfni til að þurfa alls ekki að merkja brot inn. Ef við leysum jöfnuna með tilliti til verður auðveldara að finna þrjár lausnir hennar.
Nú getum við valið gildi sem gefa heiltöluhnit. Lausnirnar fyrir og eru sýndar.
𝑦 = − 2 𝑥 + 3 y = −2 x + 3
0 0
3 3
( 0 , 3 ) ( 0 , 3 )
1 1
1 1
( 1 , 1 ) ( 1 , 1 )
− 1 −1
5 5
( − 1 , 5 ) ( - 1 , 5 )
− 1 −1
5 5
( − 1 , 5 ) ( - 1 , 5 )
Dæmi 11.19
Teiknið graf jöfnunnar
Lausn
Finnið þrjá punkta sem eru lausnir jöfnunnar.
Leysið fyrst jöfnuna með tilliti til
3𝑥+𝑦=−1𝑦=−3𝑥−1
Við látum vera og til að finna þrjá punkta. Röðuðu tvenndirnar eru sýndar í töflunni. Merkið punktana inn, athugið að þeir liggi á sömu línu og dragið línuna.
𝑦 = − 3 𝑥 − 1 y = −3 x − 1
0 0
− 1 −1
( 0 , − 1 ) ( 0 , −1 )
1 1
− 4 −4
( 1 , − 4 ) ( 1 , −4 )
− 1 −1
2 2
( − 1 , 2 ) ( −1 , 2 )
− 1 −1
2 2
( − 1 , 2 ) ( −1 , 2 )
Ef þið getið valið hvaða þrjá punkta sem er til að teikna línu, hvernig vitið þið þá hvort grafið ykkar samsvarar grafinu í svarhluta bókarinnar? Gröfin samsvara ef skurðpunktar þeirra við og -ásana eru þeir sömu.
Teiknið gröf lóðréttra og láréttra lína
Getum við teiknað graf jöfnu með aðeins einni breytu? Aðeins og engu 𝑦 eða aðeins og engu Hvernig búum við til gildistöflu fyrir punktana sem merkja á inn?
Skoðum jöfnuna Jafnan segir að sé alltaf jafnt svo gildi þess er óháð Hvert sem gildi er, er gildi alltaf
Til að búa til lausnatöflu ritum við fyrir öll gildi og veljum síðan hvaða gildi sem er fyrir Þar sem er óháð 𝑦 getið þið valið hvaða tölur sem er. Til að punktarnir rúmist á hnitakerfinu notum við þó og sem -hnit, eins og sýnt er í töflunni.
𝑥 = − 3 x = −3
− 3 −3
1 1
( − 3 , 1 ) ( −3 , 1 )
− 3 −3
2 2
( − 3 , 2 ) ( −3 , 2 )
− 3 −3
3 3
( − 3 , 3 ) ( −3 , 3 )
− 3 −3
3 3
( − 3 , 3 ) ( −3 , 3 )
Merkið síðan punktana inn og tengið þá með beinni línu. Takið eftir á mynd 11.12 að grafið er lóðrétt lína.
Dæmi 11.20
Teiknið graf jöfnunnar Hvers konar línu myndar það?
Lausn
Jafnan hefur aðeins eina breytu, og er alltaf jafnt Við búum til töflu þar sem er alltaf og setjum inn hvaða gildi sem er fyrir
𝑥 = 2 x = 2
2 2
1 1
( 2 , 1 ) ( 2 , 1 )
2 2
2 2
( 2 , 2 ) ( 2 , 2 )
2 2
3 3
( 2 , 3 ) ( 2 , 3 )
2 2
3 3
( 2 , 3 ) ( 2 , 3 )
Merkið punktana inn og tengið þá eins og sýnt er.
Grafið er lóðrétt lína sem sker -ásinn í
Hvað ef jafnan inniheldur en ekkert ? Teiknum graf jöfnunnar Nú er -gildið fasti og því er óháð
Til að búa til lausnatöflu ritum við fyrir öll gildi og veljum síðan hvaða gildi sem er fyrir
Við notum og sem -gildi.
𝑦 = 4 y = 4
0 0
4 4
( 0 , 4 ) ( 0 , 4 )
2 2
4 4
( 2 , 4 ) ( 2 , 4 )
4 4
4 4
( 4 , 4 ) ( 4 , 4 )
4 4
4 4
( 4 , 4 ) ( 4 , 4 )
Merkið punktana inn og tengið þá eins og sýnt er á mynd 11.13. Grafið er lárétt lína sem sker við gildið
Dæmi 11.21
Teiknið graf jöfnunnar
Lausn
Jafnan hefur aðeins eina breytu, Gildi er fast. Allar röðuðu tvenndirnar í töflunni hafa sama -hnitið, . Við veljum og sem gildi fyrir
𝑦 = − 1 y = −1
− 3 −3
− 1 −1
( − 3 , − 1 ) ( −3 , −1 )
0 0
− 1 −1
( 0 , − 1 ) ( 0 , −1 )
3 3
− 1 −1
( 3 , − 1 ) ( 3 , −1 )
3 3
− 1 −1
( 3 , − 1 ) ( 3 , −1 )
Grafið er lárétt lína sem sker -ásinn í eins og sýnt er.
Jöfnur lóðréttra og láréttra lína líkjast mjög jöfnum á borð við Hver er munurinn á jöfnunum og
Jafnan inniheldur bæði og Gildi ræðst af gildi Þá breytist eftir gildi
Jafnan hefur aðeins eina breytu. Gildi er fast. er alltaf Það er óháð gildi
Grafið sýnir báðar jöfnurnar.
Takið eftir að jafnan gefur skálínu en gefur lárétta línu.
Dæmi 11.22
Teiknið gröf og í sama rétthyrnda hnitakerfið.
Lausn
Finnið þrjár lausnir hvorrar jöfnu. Takið eftir að fyrri jafnan inniheldur breytuna 𝑥 en sú síðari ekki. Lausnir beggja jafna eru skráðar.
Grafið sýnir báðar jöfnurnar.
Æfingar úr kafla 11.2
Æfingin skapar meistarann
Skilja samband lausna jöfnu og grafs hennar
Í hverju eftirfarandi dæma eru sýnd jafna og graf hennar. Ákvarðið fyrir hverja raðaða tvennd:
ⓐ Er raðaða tvenndin lausn jöfnunnar?
ⓑ Liggur punkturinn á línunni?
39.
𝑦 =𝑥 +2
(0,2)
(1,2)
(−1,1)
(−3,1)
40.
𝑦 =𝑥 −4
(0,−4)
(3,−1)
(2,2)
(1,−5)
41.
𝑦 =12𝑥 −3
(0,−3)
(2,−2)
(−2,−4)
(4,1)
42.
𝑦 =13𝑥 +2
(0,2)
(3,3)
(−3,2)
(−6,0)
Teiknið graf línulegrar jöfnu með því að merkja punkta
Í eftirfarandi verkefnum skuluð þið teikna graf hverrar jöfnu með því að merkja punkta.
43.
𝑦=3𝑥−1
44.
𝑦=2𝑥+3
45.
𝑦=−2𝑥+2
46.
𝑦=−3𝑥+1
47.
𝑦=𝑥+2
48.
𝑦=𝑥−3
49.
𝑦=−𝑥−3
50.
𝑦=−𝑥−2
51.
𝑦=2𝑥
52.
𝑦=3𝑥
53.
𝑦=−4𝑥
54.
𝑦=−2𝑥
55.
𝑦=12𝑥+2
56.
𝑦=13𝑥−1
57.
𝑦=43𝑥−5
58.
𝑦=32𝑥−3
59.
𝑦=−25𝑥+1
60.
𝑦=−45𝑥−1
61.
𝑦=−32𝑥+2
62.
𝑦=−53𝑥+4
63.
𝑥+𝑦=6
64.
𝑥+𝑦=4
65.
𝑥+𝑦=−3
66.
𝑥+𝑦=−2
67.
𝑥−𝑦=2
68.
𝑥−𝑦=1
69.
𝑥−𝑦=−1
70.
𝑥−𝑦=−3
71.
−𝑥+𝑦=4
72.
−𝑥+𝑦=3
73.
−𝑥−𝑦=5
74.
−𝑥−𝑦=1
75.
3𝑥+𝑦=7
76.
5𝑥+𝑦=6
77.
2𝑥+𝑦=−3
78.
4𝑥+𝑦=−5
79.
2𝑥+3𝑦=12
80.
3𝑥−4𝑦=12
81.
13𝑥+𝑦=2
82.
12𝑥+𝑦=3
Teikna lóðréttar og láréttar línur
Teiknið lóðréttu og láréttu línurnar í eftirfarandi dæmum.
83.
𝑥=4
84.
𝑥=3
85.
𝑥=−2
86.
𝑥=−5
87.
𝑦=3
88.
𝑦=1
89.
𝑦=−5
90.
𝑦=−2
91.
𝑥=73
92.
𝑥=54
Í eftirfarandi verkefnum skuluð þið teikna gröf beggja jafna í hverju pari í sama rétthyrnda hnitakerfinu.
93.
og
94.
og
95.
og
96.
og
Blönduð verkefni
Í eftirfarandi verkefnum skuluð þið teikna graf hverrar jöfnu.
97.
𝑦 =4𝑥
98.
𝑦 =2𝑥
99.
𝑦 =−12𝑥 +3
100.
𝑦 =14𝑥 −2
101.
𝑦 =−𝑥
102.
𝑦 =𝑥
103.
𝑥 −𝑦 =3
104.
𝑥 +𝑦 =−5
105.
4𝑥 +𝑦 =2
106.
2𝑥 +𝑦 =6
107.
𝑦 =−1
108.
𝑦 =5
109.
2𝑥 +6𝑦 =12
110.
5𝑥 +2𝑦 =10
111.
𝑥 =3
112.
𝑥 =−4
Stærðfræði daglegs lífs
113.
Leiga húsbíls Robinson-fjölskyldan leigði húsbíl í eina viku til að fara í frí. Leigan kostaði auk fyrir hverja mílu. Línulega jafnan gefur því kostnaðinn 𝑦 við að aka mílur. Reiknið leigukostnaðinn við að aka mílur og teiknið síðan línuna.
114.
Vikulaun Salvador fær greidda á viku fyrir vinnu sína í listasafni auk af sölu sinni. Jafnan gefur því upphæðina sem hann fær þegar hann selur listaverk fyrir dali. Reiknið hvað Salvador fær greitt ef hann selur fyrir og teiknið síðan línuna.
Ritunarverkefni
115.
Útskýrið hvernig þið mynduð velja þrjú til að búa til töflu og teikna línuna
116.
Hver er munurinn á jöfnum lóðréttrar og láréttrar línu?
Sjálfsmat
ⓐ Þegar þið hafið lokið verkefnunum skuluð þið nota þennan gátlista til að meta tök ykkar á markmiðum hlutans.
ⓑ Hvað ætlið þið að gera eftir að hafa farið yfir gátlistann til að öðlast öryggi í öllum námsmarkmiðunum?