66 Hringhreyfing og snúningshreyfing
Stutt svör
6.1 Snúningshorn og hornhraði
Spurning 37. Hver er snúningshliðstæða línulegs hraða?
- Hornfærsla
- Hornhraði
- Hornhröðun
- Hverfiþungi
Spurning 38. Hver er snúningshliðstæða vegalengdar?
- Snúningshorn
- Kraftvægi
- Hornhraði
- Hverfiþungi
6.2 Jöfn hringhreyfing
Spurning 43. Hvers konar stærð er miðsóknarhröðun?
- Skalarstærð; miðsóknarhröðun hefur aðeins stærð en enga stefnu
- Skalarstærð; miðsóknarhröðun hefur bæði stærð og stefnu
- Vigurstærð; miðsóknarhröðun hefur aðeins stærð en enga stefnu
- Vigurstærð; miðsóknarhröðun hefur bæði stærð og stefnu
Spurning 47. Hverjar eru SI-einingar miðsóknarkrafts?
- m
- m/s
- m/s²
- njúton
6.3 Snúningshreyfing
Spurning 49. Tengslum milli hvaða stærða er lýst með hreyfifræði snúningshreyfingar?
- Hreyfifræði snúningshreyfingar lýsir tengslum milli snúningshorns, hornhraða og hornhröðunar.
- Hreyfifræði snúningshreyfingar lýsir tengslum milli snúningshorns, hornhraða, hornhröðunar og hverfiþunga.
- Hreyfifræði snúningshreyfingar lýsir tengslum milli snúningshorns, hornhraða, hornhröðunar og tíma.
- Hreyfifræði snúningshreyfingar lýsir tengslum milli snúningshorns, hornhraða, hornhröðunar, kraftvægis og tíma.
Spurning 51. Hvers konar stærð er kraftvægi?
- Skalarstærð
- Vigurstærð
- Einingarlaus
- Grunnstærð