Gagnrýnin hugsun
19.1 Lögmál Ohms
Spurning 11. Hraðall hraðar He-kjörnum, með hleðslu 2e, upp í hraðann v = 2 × 10⁶ m/s. Hver er straumurinn ef línuþéttleiki He-kjarnanna er λ = 10⁸ m⁻¹?
Spurning 12. Hvernig geturðu sannreynt hvort tiltekið efni sé ómskt?
- Búðu til viðnám úr efninu og mældu strauminn um viðnámið við nokkrar mismunandi spennur. Ef straumurinn er í réttu hlutfalli við spennuna er efnið ómskt.
- Búðu til viðnám úr efninu og mældu strauminn um viðnámið við nokkrar mismunandi spennur. Ef straumurinn er í öfugu hlutfalli við spennuna er efnið ómskt.
- Búðu til viðnám úr efninu og mældu strauminn um viðnámið við nokkrar mismunandi spennur. Ef straumurinn er í réttu hlutfalli við annað veldi spennunnar er efnið ómskt.
- Búðu til viðnám úr efninu og mældu strauminn um viðnámið við nokkrar mismunandi spennur. Ef straumurinn er í öfugu hlutfalli við annað veldi spennunnar er efnið ómskt.
19.2 Raðtengdar rafrásir
Spurning 13. Þú mátt velja úr þremur rafhlöðum (5 V, 9 V og 12 V) og fimm viðnámum (10 Ω, 20 Ω, 30 Ω, 40 Ω og 50 Ω). Hvað geturðu valið til að mynda rásamynd þar sem straumurinn er 0,175 A? Þú þarft ekki að nota alla rásarhlutana.
Spurning 14. Hvert er mesta mögulega viðnám sem fæst með 100 Ω viðnámi og 40 Ω viðnámi?
- 100 Ω
- 140 Ω
- 180 Ω
- 240 Ω
Spurning 15. Raðaðu punktunum A, B, C og D á rásamyndinni frá lægstu spennu til hæstu spennu.

19.3 Hliðtengdar rafrásir
Spurning 16. Er hægt að einfalda allar samsetningar viðnáma í rað- og hliðtengingar?
- Nei, ekki er hægt að einfalda allar hagnýtar viðnámsrásir í rað- og hliðtengingar.
- Já, hægt er að einfalda allar hagnýtar viðnámsrásir í rað- og hliðtengingar.
Spurning 17. Hvert er jafngilt viðnám rásarinnar sem sýnd er hér fyrir neðan?

19.4 Rafafl
Spurning 18. Tvær perur hafa mismunandi viðnám. (a) Ef perurnar eru hliðtengdar, hvor lýsir skærar: peran með meira viðnám eða peran með minna viðnám? (b) Ef perurnar eru raðtengdar, hvor lýsir skærar? Athugaðu að skærari peran eyðir meira rafafli.
Spurning 19. Til að mæla rafaflið sem fartölvan þín notar seturðu straummæli, tæki sem mælir rafstraum, í röð við jafnstraumsaflgjafa hennar. Þegar slökkt er á skjánum tekur tölvan 0,40 A straum. Þegar kveikt er á skjánum með fullum birtustyrk tekur hún 0,90 A straum. Ef jafnstraumsaflgjafinn gefur 16 V, hve mikið rafafl notar skjárinn?