Dæmi
11.1 Hitastig og varmaorka
Dæmi 14. Hvað eru 35,0 °F mörg kelvin?
- 1,67 K
- 35,0 K
- −271,5 K
- 274,8 K
Dæmi 15. Hannaðu hitakvarða þar sem frostmark vatns er 0 gráður og suðumark þess er 70 gráður. Hver væri herbergishiti á þessum kvarða?
- Ef herbergishiti er 25,0 °C verður hitastigið á nýja kvarðanum 17,5°.
- Ef herbergishiti er 25,0 °C verður hitastigið á nýja kvarðanum 25,0°.
- Ef herbergishiti er 25,0 °C verður hitastigið á nýja kvarðanum 35,7°.
- Ef herbergishiti er 25,0 °C verður hitastigið á nýja kvarðanum 50,0°.
11.2 Varmi, eðlisvarmi og varmaflutningur
Dæmi 16. Ákveðnum vatnsskammti er veitt 4,0 kJ af varma. Þetta hækkar hitastig hans um 30,0 °F. Hver er massi vatnsins í grömmum?
- 5,7 g
- 570 g
- 5700 g
- 57 g
Dæmi 17. 5290 J af varma er veitt 0,500 kg af vatni við 15,00 °C. Hvert verður lokahitastig vatnsins?
- 15,25 °C
- 12,47 °C
- 40,3 °C
- 17,53 °C
11.3 Fasabreytingar og dulvarmi
Dæmi 18. Hversu mikla orku þarf til að hita 1,00 kg af ís við 0 °C í vatn við 15,0 °C?
- 271 kJ
- 334 kJ
- 62,8 kJ
- 397 kJ
Dæmi 19. Ísmolar eru notaðir til að kæla gosdrykk með massann m_gos = 0,300 kg við 15,0 °C. Ísinn er við 0 °C og heildarmassi ísmolanna er 0,020 kg. Gerðu ráð fyrir að gosdrykkurinn sé í frauðplastíláti þannig að hægt sé að hunsa varmatap og að gosdrykkurinn hafi sama eðlisvarma og vatn. Finndu lokahitastigið þegar allur ísinn hefur bráðnað.
- 19,02 °C
- 90,3 °C
- 0,11 °C
- 9,03 °C