1111 Varmaorka, varmi og vinna
Fjölvalsspurningar
11.1 Hitastig og varmaorka
Spurning 21. Hitastigsmunur upp á 1 K er sá sami og
- 1 Celsíusgráða
- 1 Fahrenheit-gráða
- 273,15 Celsíusgráður
- 273,15 Fahrenheit-gráður
Spurning 22. Hvaða hitakvarði er helst notaður á vísindarannsóknarstofum?
- Celsíus-kvarði
- Fahrenheit-kvarði
- Kelvin-kvarði
- Rankine-kvarði
11.2 Varmi, eðlisvarmi og varmaflutningur
Spurning 23. Hvaða fasi vatns hefur hæsta eðlisvarmann?
- fast efni
- vökvi
- lofttegund
Spurning 24. Hvers konar varmaflutningur krefst ekki efnismiðils?
- varmaleiðni
- varmaburður
- endurkast
- varmageislun
Spurning 25. Hvert þessara efna hefur hæsta eðlisvarmann?
- kopar
- kvikasilfur
- ál
- viður
Spurning 26. Nefndu dæmi um varmaflutning með varmaburði.
- orkan sem geislar frá glóþræði í rafmagnsperu
- orkan sem kemur frá sólinni
- panna á heitri hellu
- vatn sem sýður í potti
11.3 Fasabreytingar og dulvarmi
Spurning 27. Hverjar eru SI-einingar dulvarma?
- J/kg
- J ⋅ kg
- J/cal
- cal/kg
Spurning 28. Hvaða efni hefur hæsta bræðsluvarmann?
- gull
- vatn
- kvikasilfur
- wolfram
Spurning 29. Við hvaða fasabreytingar fer efni yfir í orkuríkara ástand?
- storknun og gufun
- bráðnun og þurrgufun
- bráðnun og gufun
- bráðnun og storknun
Spurning 30. Herbergi er með glugga úr þunnu gleri. Herbergið er kaldara en loftið úti. Dálítil þétting er á glerinu. Hvorum megin við glerið er líklegast að þéttingin sé?
- Þéttingin er utan á glerinu þegar kalt og þurrt loft fyrir utan herbergið kemst í snertingu við kalda rúðuna.
- Þéttingin er utan á glerinu þegar hlýtt og rakt loft fyrir utan herbergið kemst í snertingu við kalda rúðuna.
- Þéttingin er innan á glerinu þegar kalt og þurrt loft inni í herberginu kemst í snertingu við kalda rúðuna.
- Þéttingin er innan á glerinu þegar hlýtt og rakt loft inni í herberginu kemst í snertingu við kalda rúðuna.