Umræðuspurningar
Umræðuspurningar
Opin nýsköpun hefur verið gagnrýnd fyrir að vera óljóst hugtak og hvetja fyrirtæki til fyrirtækjanjósna í leit að lausnum á vandamálum sem mörg fyrirtæki í sömu atvinnugrein glíma við. Stendur opin nýsköpun undir væntingum? Er hún í raun ný af nálinni? Hvetur hún til þjófnaðar hugverka?
Hvenær verður vara raunveruleg uppfinning? Dettur þér í hug vara sem sumir telja uppfinningu en aðrir aðeins tilbrigði við eldri vörur?
Hvaða gildi hefur skapandi starf sem er ekki ætlað til sölu og verður aldrei að vöru á markaði?
Gagnrýnendur nútímasamfélagsins telja að eins konar „tæknidýrkun“ ríki víða um heim. Sumt fólk lítur á nýsköpun og uppfinningasemi sem allsherjarlausn þótt samfélagsleg vandamál á borð við fátækt, umhverfisspjöll og hungur séu enn til staðar. Getur nýsköpun læknað öll mein samfélagsins? Ef svo er, hvað stendur þá í vegi fyrir því? Hvers vegna hefur nútíminn ekki leyst grundvallarþarfir fólks og vandamál tengd mannréttindum með tækni?
Dettur þér í hug vara sem þú eða einhver sem þú þekkir tókuð snemma í notkun en féll síðan í dreifingargjána milli fyrstu notenda og fyrri meirihlutans? Hvaða vara var það og hvers vegna telur þú að henni hafi ekki tekist að komast yfir gjána?
Hvers vegna er líkan fyrir sköpunargáfu nauðsynlegt? Er sköpunargáfa ekki andstæða skipulags, eða jafnvel fjarvera þess?
Hvers vegna leggur nýsköpunarlíkanið áherslu á að ferlinu ljúki ekki með úrlausn vandamála?
Hvers vegna er svo mikil áhersla lögð á uppbyggingu teymis í kaflahlutanum um uppfinningar? Er það ekki alþekkt að uppfinningafólk og sannarlega skapandi fólk vinni eitt?