Umræðuspurningar
Umræðuspurningar
Hvað felst í því að búa yfir frumkvöðlahugsun?
Ræðið á hvaða grunni markhópur er skilgreindur. Hvernig auðveldar áhersla á tiltekinn markhóp þróun eða aðlögun hugmyndar?
Útskýrið mikilvægi sjálfsígrundunar og heiðarlegs sjálfsmats áður en frumkvöðlaferli hefst, meðan verið er að hrinda því af stað og eftir að það er hafið.
Notið upplýsingarnar um skref frumkvöðlaferlisins til að setja fram eigið dæmi og tengja það við meginhugtök þessa hluta.
Íhugið spurningar sem þið gætuð lagt fyrir ykkur áður en frumkvöðlaverkefni er sett af stað. Ræðið tvær eða þrjár spurningar sem hafa sérstaka skírskotun til ykkar og persónulegrar reynslu ykkar. Hvers vegna eða hvernig hafa þessar spurningar meiri áhrif á ykkur en aðrar?
Íhugið eigin stöðu í umræðunni um „erfðir eða umhverfi“ og hvort frumkvöðlar séu „fæddir eða mótaðir“. Hvernig teljið þið að þessi sjónarhorn fléttist saman og móti möguleika ykkar sem frumkvöðla?
Að hvaða leyti eru stig lífsferils einstaklings og frumkvöðlaverkefnis sambærileg og að hvaða leyti eru þau ólík? Hvernig geta þessi tvö hugtök hjálpað ykkur að skapa árangursríkt verkefni?
Íhugið sögulega þróun frumkvöðlastarfs og nýsköpunar. Hvernig eflir tækni- og þekkingardrifið hagkerfi samtímans frumkvöðlastarf?
Íhugið hinar fjölmörgu leiðir í frumkvöðlastarfi. Hvernig gætu núverandi aðstæður ykkar bent til hugsanlegrar leiðar í frumkvöðlastarf?
Er munur á takmarkaðri prufukynningu og prufuopnun? Hvers vegna eru tvö ólík hugtök notuð?
Hver er ávinningurinn af takmarkaðri prufukynningu? Hvaða ókostir geta fylgt henni?
Lýsið bakgrunni ykkar og þeirri þjálfun sem þið hafið fengið og ræðið síðan mikilvægi þess að tengja hvort tveggja við mögulega leið í frumkvöðlastarf.
Hvernig getur gerð aðgerðaáætlunar hjálpað ykkur að ná árangri sem frumkvöðlar?
Hver eru tengsl aðgerðaáætlunar og ramma? Að hvaða leyti eru þau ólík?
Hvers vegna sækir fleira fólk í óhefðbundin tækifæri til frumkvöðlastarfs?
Hver er munurinn á frumkvöðli af erlendum uppruna og frumkvöðli úr minnihlutahópi og hvað eiga þessir hópar sameiginlegt?