Dæmaspurningar
Dæmaspurningar
Rifjið upp sögu Sixto Cancel og frumkvöðlaferlið sem leiddi til þróunar samfélagsverkefnisins Think of Us.
- Íhugið frumkvöðlaferli Sixto og þróun Think of Us. Hvers konar áskoranir eða hindranir teljið þið að hann hafi þurft að yfirstíga til að ljúka ferlinu?
- Ræðið nokkra kosti og ókosti sem tengjast bakgrunni Sixto Cancel og reynslu hans af því að byggja upp fyrirtæki og stjórn þess.
- Íhugið hvernig Sixto Cancel byggði upp fyrirtæki sitt. Ræðið hvaða skrefum frumkvöðlaferlisins hann fylgdi og hverjum hann sleppti.
Skoðið vefi Cratejoy og Prospurly, sem fjallað er um í Frumkvöðull að verki: Prospurly. Hvernig fylgdu stofnendur þessara verkefna frumkvöðlaferlinu?
Eftir að þið hafið kynnt ykkur Man Crates skuluð þið útskýra hvernig fyrirtækið hefur fylgt líkaninu á mynd 2.20.
Hvaða aðrar hugmyndir að eigin fyrirtæki koma ykkur til hugar þegar þið lítið til Man Crates sem fyrirmyndar?
Farið aftur í verkefnareitinn Leystu verkefnið: Hugmyndir að sprotafyrirtækjum. Veljið annaðhvort eigin hugmynd eða hugmynd af öðrum hvorum vefnum. Hvar mætti afla frekari upplýsinga um hugmyndina? Það gæti falist í að finna fyrirtæki þar sem hægt væri að fylgja fagmanni eftir í starfi, fara í starfsnám eða afla upplýsinga með öðrum rannsóknaraðferðum.
Farið aftur í verkefnareitinn Leystu verkefnið: Hugmyndir að sprotafyrirtækjum og skoðið tenglana á viðskiptahugmyndir með sömu hugmynd og þið völduð í spurningu 1. Hvaða fimm nýjar viðskiptahugmyndir gætu sprottið af þessari einu hugmynd?
Skoðið dæmaspurningarnar í Leiðum í frumkvöðlastarfi aftur. Veljið eitt rammaverkfæri sem fjallað er um í þessum hluta og beitið rammanum við mótun hugmyndarinnar ykkar.
Hvers vegna völduð þið þennan ramma fremur en annan?
Hvaða nýjar upplýsingar komu fram þegar rammanum var beitt við mótun hugmyndarinnar og hvaða upplýsingar vantar enn eða þarf að útfæra betur?