Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
New Story er framsýnt samfélagsfyrirtæki sem setti sér að leysa alþjóðlegan vanda sem hefur áhrif á meira en einn milljarð manna1 um allan heim: heimilisleysi og skort á viðunandi húsaskjóli. Fyrirtækið hefur vakið hrifningu margra fjárfesta með róttækum nýjungum í byggingaraðferðum. Stofnendurnir, Brett Hagler, Alexandria Lafci, Mike Arrieta og Matthew Marshall, sameinast um brennandi áhuga á því „að bæta líf fólks með öruggu húsnæði og sameiginlegri framtíðarsýn um að breyta hefðbundnu góðgerðarlíkani“.2 Fjöldi fólks hafði hrakist frá heimilum sínum vegna náttúruhamfara og stofnendurnir sáu að víða um heim vantaði viðunandi húsaskjól. Þeir ákváðu því að beita annars konar góðgerðarlíkani: að vinna með öðrum samtökum á sviði húsbygginga og nýta hópfjármögnun. Frumkvöðlarnir fjórir sameinuðu krafta sína og kunnáttu og stofnuðu fyrirtæki sem leggur áherslu á að byggja sjálfbær heimili hratt og á viðráðanlegu verði. Viðskiptalíkan New Story byggist á nýstárlegri nálgun við hönnun og byggingu heimila. Tekið er mið af þörfum hverrar fjölskyldu, unnið er með samstarfsaðilum og starfsfólki á staðnum og hópfjármögnunarherferðir standa undir byggingarkostnaði.
Í upphafi vissi New Story að fyrirtækið þyrfti stuðning reyndra leiðbeinenda og viðskiptahraðals til að fjármagna almennan rekstrarkostnað. Það sótti því um aðild að einum þekktasta viðskiptahraðli Bandaríkjanna, Y Combinator, samfélagi stofnenda sem fjármagnar sprotafyrirtæki í hröðu þriggja mánaða þróunarferli. New Story nýtti tækifærið og byggði 113 hús á Haítí í herferðinni „100 heimili á 100 dögum“, áskorun sem Y Combinator lagði fyrir fyrirtækið. Með þessari reynslu fann teymið alþjóðlega samstarfsaðila sem hjálpuðu því að ná til samfélaga í þróun í Bólivíu, Mexíkó og El Salvador.
Ein gagnlegasta tækninýjungin sem New Story hefur nýtt í samstarfi við fyrirtæki er þrívíddarprentari frá ICON. Með honum má prenta hús á aðeins tólf klukkustundum fyrir einungis 6.000 Bandaríkjadali. Þrívíddarprentarinn byggir hús með þremur meginþáttum: vélmennatækni, sérstakri efnablöndu sem þornar hratt og spjaldtölvu sem keyrir hugbúnaðinn sem þarf til að hanna húsið.
Með tryggri fjármögnun og samstarfsaðilum í nærumhverfinu hefur New Story byggt upp sextán samfélög með meira en 2.200 heimilum í fjórum löndum.34