Lykilhugtök
Lykilhugtök
- atvinnufrumkvöðull
- einstaklingur sem á frumkvöðlaverkefni og stýrir því frá degi til dags; hann tekst á við daglega áhættu og ávinning af rekstrinum og uppbyggingunni og hefur jafnvel gaman af því
- umbyltandi tækni
- tækni sem er tekin í notkun og ryður þá úr vegi rótgrónum mynstrum, ferlum og kerfum sem áður þóttu eðlileg
- sundurleit hugsun
- ferli þar sem fólk setur fram eins margar hugmyndir og hægt er, jafnvel þótt þær virðist órökréttar; hugmyndirnar geta stangast á og verið fjölbreyttar og mjög ólíkar
- áreiðanleikakönnun
- nauðsynlegar rannsóknir og athuganir sem gerðar eru til að geta tekið upplýstar ákvarðanir sem draga úr áhættu
- frumkvöðull
- einstaklingur sem kemur auga á hugmynd sem enginn annar hefur séð eða hrint í framkvæmd; rekstur smáfyrirtækis og sérleyfisrekstur eru líka leiðir í frumkvöðlastarfi
- frumkvöðlahugsun
- vitund og einbeiting sem beinist að því að finna tækifæri með því að leysa vandamál og vilji til að fylgja hugmyndinni eftir
- frumkvöðlaverkefni
- hvers kyns fyrirtæki, skipulagsheild, verkefni eða starfsemi sem felur í sér áhættu við að grípa tækifæri sem ekki hefur áður verið nýtt
- framtíðarsýn í frumkvöðlastarfi
- hugmynd um hvað frumkvöðullinn vill að verkefnið verði, hvernig það muni líta út, hvaða kraftar knýi það áfram og hvaða gildi og menning eigi að einkenna það
- uppskera
- sá tímapunktur þegar frumkvöðlaverkefni er selt og fjárfestar fá ávöxtun af fjárfestingu sinni
- lífsstílsverkefni
- rekstur þar sem stofnendur leggja megináherslu á þann lífsstíl sem frumkvöðlastarfið veitir þeim fremur en fjárhagslegan ávinning
- hlutverkayfirlýsing
- yfirlýsing um það hvers vegna skipulagsheild er til; þar kemur fram helsta langtímamarkmið hennar, hvað verkefnið mun gera, hvaða virði það skapar fyrir endanlegan viðskiptavin og hvernig það ætlar að fara að því
- tækifæramiðað sjónarhorn
- aðferð til að greina vandamál og ákvarða hvernig breyta megi því í tækifæri til að skapa nýtt frumkvöðlaverkefni
- tölulegur mælikvarði
- aðferð til að skera úr um hvort markmiði hafi verið náð
- raðfrumkvöðull
- frumkvöðull sem kemur að stofnun margra frumkvöðlaverkefna
- SMART-markmið
- vel mótuð og skilgreind markmið sem eru sértæk, mælanleg, raunhæf, mikilvæg og tímasett
- samfélagsfrumkvöðull
- frumkvöðull sem leitast við að leysa samfélagslegt, umhverfislegt eða efnahagslegt vandamál
- virðistilboð
- stutt lýsing á þeim ávinningi, eða virði, sem tiltekin vara eða þjónusta veitir viðskiptavinum
- yfirlýsing um framtíðarsýn
- mynd af framtíð frumkvöðlaverkefnisins eða því hvernig það mun þróast