Inngangur

Yfirlit kaflans
Inngangur
Phil Libin, annar stofnenda og fyrrverandi forstjóri Evernote, sagði eitt sinn að það væru „margar slæmar ástæður til að stofna fyrirtæki. En það er aðeins ein góð og gild ástæða ... hún er sú að breyta heiminum.“1 Evernote er dæmi um sprotafyrirtæki. Markmið þess er að skipuleggja líf okkar betur og auka getu okkar til að muna með því að geyma í Evernote-forritinu þær upplýsingar sem notandinn þarf eða vill varðveita. Evernote er hannað til að skrá upplýsingar í glósum, meðal annars sem myndir, vefsíður, teikningar og jafnvel hljóð, halda utan um þær og skipuleggja og vista þær síðan til varðveislu. Evernote Corporation lýsir sér svo: „Við erum ekki aðeins skipulagsheild heldur fjölskylda fagfólks sem er skapandi, vinnur að nýjungum og býr hvert um sig yfir reynslu á sínu sviði.“2
Um allan heim beita einstaklingar, samfélög og stofnanir sér fyrir útbreiðslu frumkvöðlastarfsemi og styðja við hana. Margir háskólar bjóða upp á námskeið, námsgráður og keppnir ætlaðar frumkvöðlateymum. Samfélög veita stuðning með þjónustu á borð við frumkvöðlasetur sem stuðla að áætlanagerð og undirbúningi að stofnun fyrirtækja. Global Action Programme on Education for Sustainable Development hjá UNESCO heldur til dæmis árlega Youth Entrepreneurship Competition.3 Í þeirri keppni lagði nemandinn Chloe Huang árið 2017 fram hugmynd sína að orkuskála sem nýtir þörunga. Huang kom auga á vandann sem fylgir of miklum þörungavexti í vötnum og sá lausn í að breyta þörungunum í lífeldsneyti. Þannig mætti framleiða umhverfisvæna orku og draga um leið úr umhverfisvanda.4
Bæði Libin og Huang leggja áherslu á að nýta tækni og bæta lífsgæði en nálgun þeirra á frumkvöðlastarfsemi er engu að síður mjög ólík. Libin vildi bæta lífsgæði með því að gera notendum kleift að halda utan um upplýsingar og skipuleggja þær í starfi og einkalífi. Huang beindi hins vegar sjónum að hnattrænum umhverfisvanda og sjálfbærum leiðum til að bæta vatnsgæði. Hvor hugmynd um sig leysir vanda sem margir hefðu ef til vill ekki einu sinni tekið eftir. Það er hluti af sjónarhorni frumkvöðulsins að koma auga á vandamál sem þarf að leysa og finna síðan lausn sem auðveldar líf okkar eða bætir það.