Tilviksspurningar
Tilviksspurningar
Hvaða aðrar vörur, sem samræmast áherslu Angads Daryani á að bæta líf fólks, myndir þú leggja til að hann þróaði?
Á vef Angads Daryani segist hann telja „að breyta þurfi þeirri leið sem mannkynið fetar til hins betra“. Hvaða aðrar þarfir hefur mannkynið og hvaða önnur vandamál þarf það að leysa? Settu saman lista yfir tuttugu þarfir sem samræmast þessari afstöðu Angads Daryani.
Kynntu þér Miracle Messages. Greindu yfirlýsingu stofnunarinnar um framtíðarsýn, hlutverkayfirlýsingu hennar og yfirlýsingar um gildi. Afritaðu yfirlýsingarnar ekki orðrétt, heldur semdu þínar eigin út frá því sem þú myndir móta ef þú værir leiðandi frumkvöðull stofnunarinnar.
Nefndu fimm aðrar skipulagsheildir sem þú myndir vilja eiga samstarf við vegna þjónustu þeirra eða vara ef þú værir leiðandi frumkvöðull Miracle Messages. Hvaða virði skapar hver þessara fimm skipulagsheilda fyrir framtíðarsýn, hlutverk og gildi Miracle Messages? Hvaða þjónustu eða vörur bjóða hvorki Miracle Messages né þessar fimm skipulagsheildir? Hvaða nýjan rekstur í hagnaðarskyni eða starfsemi án hagnaðarsjónarmiða mætti skapa sem afleidda hugmynd út frá rannsókn þinni á Miracle Messages?
Skoðaðu vefinn http://www.coastaltractor.com/ til að kynna þér Coastal Tractor. Hvaða afleiddu hugmyndir getur þú mótað með því að nýta sömu tækni eða sömu grunnhugmynd og skordýraryksugan?
Hvaða merki um frumkvöðlahugsun koma fram á vef Coastal Tractor?
Telur þú að Coastal Tractor noti umbyltandi tækni? Hvers vegna eða hvers vegna ekki?