Verkefni
Verkefni
Samlagningarkerfi
Leitaðu á netinu að „samlagningarkerfum talna“ og „additive number systems“. Hvaða kerfi koma fram?
- Lýstu samlagningarkerfinu sem þú fannst.
Leitaðu á netinu að þremur öðrum samlagningarkerfum talna.
Tölvur og talnakerfi
Leitaðu á netinu að upplýsingum um hvaða grunntölu tölvur nota.
Hafa verið gerðar tilraunir til að nota aðrar grunntölur í tölvum?
Kannaðu hvers vegna talnakerfið sem tölvur nota hentar þeim vel.
Kannaðu hvernig talnakerfi tölva tengist rafrásum þeirra.
Kannaðu tengsl Boole-rökfræði og tvíundarkerfis tölva og athugaðu hvað felst í tvískiptingunni í hvoru tilviki.
Rannsóknir fara fram á notkun skammtabita í tölvum. Kannaðu hvað skammtabitar eru og við hvaða útreikninga notkun þeirra gæti veitt forskot á hefðbundnar tölvur.
Menningarheimar sem nota aðrar grunntölur en 10
Leitaðu á netinu að þremur menningarheimum, öðrum en menningarheimum Babýloníumanna og maja, sem hafa notað talnakerfi með aðra grunntölu en 10.
Saga núllsins
Notaðu tiltækar heimildir til að kanna sögu núllsins í að minnsta kosti þremur ólíkum talnakerfum. Fjallaðu meðal annars um hvenær og hvers vegna núlltákn þróaðist í hverju kerfi og hvers vegna það er mikilvægt í sætiskerfi.
Talnakerfi frá öðrum heimshlutum
Notaðu tiltækar heimildir til að finna að minnsta kosti þrjú talnakerfi frá Afríku sunnan Sahara, Ástralíu, Kína eða Kyrrahafseyjum. Kannaðu hvort þau séu sætiskerfi, samlagningarkerfi eða blanda af hvoru tveggja, hvaða hugtök og heiti eru notuð um þau, hvort þau hafi núlltákn og, ef um sætiskerfi er að ræða, hvaða grunntölu þau nota.