Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Þótt ákvarðanir okkar í vinnunni varði rekstur fyrirtækja geta þær verið persónulegar, enda ráðast þær að hluta af því hvernig við beitum samviskunni. Rétt eins og líkaminn þarfnast næringar og umönnunar þarf að rækta samviskuna. Þroskasálfræðingar hafa lengi vitað að mótun samviskunnar tekur tíma, sem og þroski þess einstaklings sem lætur lífsgildi sín og breytni haldast í hendur. Engar flýtileiðir eru til. Ófullkomleiki, sjálfsefi og mistök eru hluti af ferlinu. Það sem skiptir máli í lífinu — bæði við val á starfsvettvangi og mótun einkalífs — er hvernig við nýtum visku, menntun og reynslu til að taka ákvarðanir og verða sú manneskja sem við viljum vera.
Það getur verið erfitt í upphafi að finna rétta stefnu, en með hverri ákvörðun sem byggist á heilindum verður leiðin örlítið greiðfærari. Hið gagnstæða á einnig við: þegar við vanrækjum eða hunsum samviskuna verður erfiðara að snúa við. Í þessum lokakafla er fjallað um það ferli að verða fagmanneskja með óhagganlega siðferðilega afstöðu í síbreytilegum heimi. Hvar ert þú staddur á eigin lífsleið og — það sem meira máli skiptir — í hvaða átt stefnirðu (mynd 11.1)? Hvert mun val þitt á vinnu og starfsferli leiða þig?