9.10.0 Yfirlit kennslustundar
9.10.0 • Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund rifjar þú upp topppunktsform annars stigs stæðu, kosti þess og tengsl þess við grafið. Þú rifjar líka upp hvernig má breyta stæðum á þáttuðu formi yfir á staðalform og stæðum á topppunktsformi yfir á staðalform. Síðan kannar þú hvernig má breyta sömu stæðum úr staðalformi aftur yfir á topppunktsform.
Að þessari kennslustund lokinni getur þú:
fundið topppunkt grafs annars stigs falls þegar stæðan sem skilgreinir fallið er rituð á topppunktsformi.
útskýrt merkingu hugtaksins „topppunktsform“ og þekkt dæmi um annars stigs stæður á þessu formi.
endurritað annars stigs stæðu á staðalformi þegar hún er gefin á þáttuðu formi.
endurritað annars stigs stæðu á topppunktsformi þegar hún er gefin á staðalformi.
Þessi verkefni hjálpa þér að ná markmiðunum:
9.10.1 Topppunktur og skurðpunktar falls
9.10.2 Liðun úr þáttuðu formi yfir á staðalform
9.10.3 Umbreyting úr staðalformi í topppunktsform
9.10.3 Sjálfspróf
9.10.3 Viðbótarefni
9.10.4 Stæður endurritaðar á topppunktsformi
9.10.4 Sjálfspróf
9.10.4 Viðbótarefni
9.10.5 Mismunandi form annars stigs stæðna
9.10.6 Topppunktsform og hnit topppunktsins
Að því loknu æfir þú þig og rifjar efnið upp.
9.10.7 Æfingar
9.10.8 Samantekt kennslustundar