2.6.0 Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund kannar þú hvernig hægt er að margfalda aðra eða báðar jöfnurnar í jöfnuhneppi með tölu svo hægt sé að fella út breytu. Þú lærir líka að þegar þú margfaldar jöfnur í jöfnuhneppi með tölu, leggur jöfnurnar saman, dregur þær frá eða umritar þær á annan hátt, ertu í raun að búa til jafngilt jöfnuhneppi sem hjálpar þér að nálgast lausn upprunalega jöfnuhneppisins.
Að kennslustundinni lokinni getur þú:
Útskýrt hvernig það að margfalda jöfnur með tölu getur hjálpað við að leysa línuleg jöfnuhneppi.
Þessi verkefni hjálpa þér að ná markmiðinu:
2.6.1: Að margfalda jöfnur með tölu
2.6.2: Að skrifa nýtt jöfnuhneppi til að leysa gefið jöfnuhneppi
2.6.2: Sjálfspróf
2.6.2: Ítarefni
2.6.3: Að finna lausnir í óröðuðum söfnum jafngildra jöfnuhneppa
2.6.3: Sjálfspróf
2.6.3: Ítarefni
2.6.4: Að búa til jafngild jöfnuhneppi
Eftir það æfir þú þig og rifjar efnið upp.
2.6.5: Æfingar
2.6.6: Samantekt kennslustundar