Samantekt 2. hluta
Í þessum hluta lærðir þú að Nafy, eigandi snakkblandna TERANGA, getur notað skorður til að búa til uppskriftir að snakkblöndum sem eru næringarríkar og skila fyrirtækinu hagnaði. Hún getur notað jöfnuhneppi til að skoða hagnað fyrirtækisins. Skorður geta táknað efri og neðri mörk á þyngd, kostnaði og næringargildum snakkblandnanna. Ójöfnur má nota til að tákna þessar skorður.
Ójöfnur með tveimur breytum má nota til að finna samsetningar tveggja hráefna sem uppfylla skorður. Ójöfnuhneppi má nota til að finna hráefnasamsetningar sem búa til snakk sem uppfyllir markmið fyrirtækisins um næringu og kostnað.
Í þessum hluta lærðir þú einnig að skrifa og leysa línuleg jöfnuhneppi. Þú lærðir að lausn jöfnuhneppis er röðuð tvennd sem uppfyllir báðar jöfnurnar. Þú notaðir bæði gröf og algebrulegar aðferðir til að finna lausnir.
Þú lærðir líka að nota skorður til að tákna efri og neðri mörk í raunverulegum aðstæðum. Þú notaðir ójöfnur með einni breytu til að tákna þessar skorður. Þú lærðir að lausnamengi ójafna með einni breytu er bil gilda sem hægt er að sýna á talnalínu.
Næst skrifaðir þú ójöfnur með tveimur breytum til að tákna skorður. Þú lærðir að lausnamengið er samsetning gilda sem gerir ójöfnuna sanna. Graf lausnamengisins er svæði sem afmarkast af línu sem getur verið hluti af lausninni eða ekki.
Að lokum lærðir þú að tvær línulegar ójöfnur sem tákna skorður í sömu aðstæðum mynda ójöfnuhneppi. Þú lærðir að lausnir hneppisins eru allar tvenndir talna sem uppfylla báðar skorðurnar samtímis. Þú sýndir lausnamengi hneppisins myndrænt með því að finna tvenndir punkta á svæðinu þar sem gröf einstakra ójafna skarast.
Opnaðu sjálfsmat nemanda fyrir 2. hluta til að ígrunda færnina sem þú lærðir í þessum hluta. Til hamingju með að ljúka 2. hluta.
Að byggja upp karakter: gróskuhugarfar
Í þessum hluta lærðir þú að gróskuhugarfar hjálpar þér að einbeita þér að því að þroska hæfileika þína frekar en að sanna hversu klár þú ert. Heilinn er eins og vöðvi sem hægt er að styrkja. Framfarir verða þegar þú tekur áskorunum og þjálfar heilann. Þegar þú gerir mistök skaltu nota þau sem tækifæri til að læra af villunni í hugsuninni. Þú getur leitað að svipuðu dæmi eða fundið einhvern sem getur hjálpað þér.