11 Skilningur á fortíðinni
Beitingar- og ígrundunarspurningar
Beitingar- og ígrundunarspurningar
1.
Hvernig telur þú að þekking þín á mannkynssögu geti hjálpað þér að ná markmiðum þínum í lífinu? Hvað vonast þú til að læra af þessu riti?
2.
Hvers vegna er mikilvægt að skoða heimildir sem fjalla á ólíkan hátt um sama efni?
3.
Hvaða gögn telur þú að þú munir skilja eftir sem frumheimildir handa komandi kynslóðum? Hvernig myndir þú vilja að þau yrðu túlkuð?
4.
Ef þú gætir lagt til viðbót í anda endurskoðunarhyggju við þá sögulegu frásögn sem þér hefur verið kennd hingað til, hver væri hún? Hvers vegna?
5.
Nefndu þrjú dæmi um félagslegar hugsmíðar sem hafa áhrif á hvernig þú sérð heiminn og útskýrðu hvers vegna þær gera það.
6.
Hvaða sögutúlkun vekur mestan áhuga þinn? Hvers vegna?
7.
Veldu nýlegan atburð sem þú hefur fylgst með í fréttum eða á samfélagsmiðlum og settu fram sögulegt yfirlit um hann. Segðu frá atburðinum í nokkrum stuttum málsgreinum og raðaðu orsökunum eftir mikilvægi. Endurskrifaðu síðan frásögnina og beittu einni af helstu túlkunarkenningum kaflans (framfarasinnaðri, hugmyndasögulegri eða kynjafræðilegri túlkun o.s.frv.). Markmið þitt er að setja fram annað sjónarhorn á sömu atburðarás.