Samantekt kafla
Samantekt kafla
13.1 Vesturlönd eftir fall Rómaveldis á ármiðöldum
Á ármiðöldum urðu til forsendur fyrir nýju samfélagi sem byggðist á rómverskum, kristnum og germönskum hefðum. Þá varð einnig endurvakning klassískrar menningar sem hafði áhrif á uppgang íslamskrar menningar. Konungar, klerkar og fræðimenn áttu þátt í að varðveita klassískan menningararf og viðhalda stjórnmála- og efnahagstengslum þvert yfir vesturhluta Afró-Evrasíu. Vaxandi menningarleg og trúarleg samheldni í Vestur-Evrópu og frumstæðar en skilvirkar stofnanir lénssamfélagsins lögðu grunn að því stöðugleika- og vaxtarskeiði sem hófst á hámiðöldum.
13.2 Fólksflutningar Seljúka og ákallið að austan
Valdhafar Abbasída höfðu náð yfirráðum í Mið-Austurlöndum og komið á fjölþjóðernislegu og fjöltrúarlegu samfélagi sem efldi viðskipti, fræðastarf og borgvæðingu. Á tíundu öld hafði áhrifasvæði kalífanna þó skroppið saman og náði aðeins yfir Sýrland og Írak. Trúarlegir og pólitískir keppinautar á borð við Fatímída, sem stofnuðu eina sjía-kalífadæmið, veiktu Abbasída. Koma Seljúk-Tyrkja hratt Fatímídum til baka og reið Býsanska ríkinu þungt högg. Seljúkar nutu stöðu sinnar sem verndarar yfirráðasvæða Abbasída og tileinkuðu sér fúslega persneska menningu, listir og bókmenntir, líkt og aðrir landvinningamenn á undan þeim. Keisarar Býsanska ríkisins höfðu glatað áliti og landsvæðum og leituðu til vesturs í þeirri von að endurnýjuð bandalög við germönsku konungsríkin gætu orðið þeim til hjálpar við að endurheimta völd sín í Anatólíu.
13.3 Patríarki og páfadómur: Kirkjan og ákall til krossferðar
Þegar samfélagið tók að rétta úr kútnum eftir hrun Karólíngaveldisins mótaðist stigveldi sem náði frá hinum lægst settu ánauðugu leiguliðum til konunga vestanverðrar Afró-Evrasíu. Páfar vildu endurbæta kirkjuna og beittu valdi sínu til að véfengja yfirráð veraldlegra valdhafa í evrópskum konungsríkjum. Þeir valdhafar reyndu jafnframt að skapa stöðugleika með því að flétta kristna trú inn í hermenningu sína, bæði til að réttlæta ofbeldi og halda aftur af því. Ákall keisara Býsanska ríkisins til páfans um aðstoð spratt af allri þessari flóknu þróun og stuðlaði að því að hrinda krossferðunum af stað. Þar hófst nýr kafli í sögu átaka sem trúarbrögð kyntu undir.
13.4 Krossferðahreyfingin
Krossferðahreyfingin bar vott um vaxandi áhrif páfadómsins í Vestur-Evrópu og örvaði viðskipti, vöxt ítölsku borgríkjanna og samskipti við þjóðir víða um Afró-Evrasíu. Krossferðirnar brugðust þó eigin hugsjónum með fjöldamorðum á saklausu fólki, svikum við aðra kristna menn og því hve oft hernaði var beitt til að ná pólitískum eða efnahagslegum markmiðum. Þær lifðu áfram í hugarheimi Evrópubúa allt til loka miðalda og arfleifð þeirra mótar heim nútímans á margan hátt.