Hvers vegna skiptir það máli?

Kaflayfirlit
Hvers vegna skiptir það máli?
American Airlines er eitt stærsta flugfélag heims og flýgur til 350 áfangastaða í 50 löndum.1 Rekstur félagsins er flókinn. Stjórnendur þess þurfa að þekkja til flugvísinda og laga og reglna um atvinnuflug, auk þess að fylgjast með veðurskilyrðum um allan heim. Þekkingarkröfurnar innan fluggeirans eru því miklar.
Rekstur fyrirtækis á borð við American Airlines krefst þó meiri þekkingar en þeirrar sem snýr að vísindum og tækni atvinnugreinarinnar. Fyrirtækið starfar ekki í einangrun heldur mótast, eins og önnur fyrirtæki, af efnahagsumhverfinu. Stjórnendur American Airlines þurfa að skilja hvernig framboð og eftirspurn hafa áhrif á eldsneytiskostnað og önnur útgjöld og fylgjast jafnframt með þjóðhagsþróun. Þegar atvinnuleysi er mikið getur reynst erfitt að selja fólki flugmiða í fríferðir. Þegar atvinnuleysi er lítið getur félagið aftur á móti átt í erfiðleikum með að ráða hæft starfsfólk á þeim launakjörum sem það telur viðunandi. Þróun heimshagkerfisins hefur einnig áhrif á reksturinn. Þegar hraður hagvöxtur er í Evrópu styrkist evran og kostnaður American Airlines vegna vara og þjónustu á Evrópuleiðum félagsins getur aukist.
Í liðnum „Item 1A. Risk Factors“, sem hefst á blaðsíðu 16 í ársskýrslu American Airlines fyrir árið 2019, gerir félagið grein fyrir því með hvaða hætti þjóðhagslegar og örhagfræðilegar aðstæður hafa áhrif á reksturinn og þeirri áhættu sem þeim fylgir. Í þessum kafla kynnumst við hagfræðilegum hugtökum sem stjórnendur ættu að taka mið af við stefnumótun.
Neðanmálsgreinar
1 American Airlines. „American Airlines Group.“ AA.com. Sótt 25. október 2021. https://www.aa.com/i18n/customer-service/about-us/american-airlines-group.jsp