Lykilhugtök
Lykilhugtök
reiknað meðaltal
miðsæknimælikvarði sem fæst með því að leggja öll gagnagildin saman og deila summunni með fjölda þeirra
stöplarit
myndrit sem dregur saman flokkagögn með því að sýna tíðni eða hlutfallslega tíðni hvers flokks
tvíbreytugögn
pöruð gögn þar sem hver mæling á annarri breytunni tengist tiltekinni mælingu á hinni
myndræn framsetning gagna
notkun myndrita, svo sem stöplarita, stuðlarita og punktarita, til að auðvelda túlkun á dreifingu, mynstrum og leitni í gögnum
reynslureglan
regla um að í bjöllulaga normaldreifingu liggi um 68%, 95% og 99,7% gilda innan eins, tveggja og þriggja staðalfrávika frá meðaltalinu
vænt gildi
vegið meðaltal mögulegra gilda breytu þar sem líkurnar á hverju gildi mynda vægin
veldisdreifing
samfelld líkindadreifing sem meðal annars er notuð til að reikna líkur á biðtíma milli atburða
tíðnidreifing
skipuleg framsetning gagnasafns sem sýnir hve oft hvert gildi eða hver flokkur kemur fyrir
margfeldismeðaltal
miðsæknimælikvarði sem fæst með því að margfalda gagnagildin saman og hefja margfeldið í veldið 1/n, þar sem n er fjöldi gilda
stuðlarit
myndrit samfelldra talnagagna sem sýnir flokkabil á lárétta ásnum og tíðni eða hlutfallslega tíðni á þeim lóðrétta
fjórðungaspönn (IQR)
mælikvarði á dreifingu miðhelmings gagnanna; mismunurinn á þriðja fjórðungsmarkinu (Q3) og því fyrsta (Q1)
miðgildi
gildið sem liggur í miðju gagnasafns eftir að gildunum hefur verið raðað
tíðasta gildi
gildið sem kemur oftast fyrir í gagnasafni
normaldreifing
samhverf bjöllulaga dreifing sem lýsir mörgum mælanlegum stærðum, til dæmis greindarvísitölu, launum, hæð og blóðþrýstingi
útlagar
gildi sem víkja verulega frá öðrum gildum í gagnasafni
prósentumörk
mörk sem skipta röðuðu gagnasafni í hundrað hluta og sýna stöðu tiltekins gildis innan þess
þýðisgögn
gögn um allar þær einingar, útkomur eða mælingar sem rannsókn beinist að
eignasafn
safn fjárfestinga, svo sem hlutabréfa, skuldabréfa, verðbréfasjóða og innstæðubréfa
líkindadreifing
stærðfræðilegt fall sem tengir líkur við mögulegar útkomur
fjórðungamörk
þrjú mörk sem skipta röðuðu gagnasafni í fjóra hluta; annað fjórðungsmarkið er miðgildið
úrtaksgögn
gögn um hlutmengi þýðis sem valið er til mælinga eða greiningar
punktarit (eða dreifirit)
myndrit sem sýnir samband tveggja breyta með því að setja hvert mælingapar fram sem punkt
staðalfrávik
dreifingarmælikvarði sem lýsir dæmigerðri fjarlægð gagnagilda frá meðaltalinu
tímaraðarmyndrit
myndrit sem sýnir mælingar í tímaröð með tímann á lárétta ásnum
dreifni
dreifingarmælikvarði sem jafngildir staðalfrávikinu í öðru veldi
vegið meðaltal
miðsæknimælikvarði þar sem hvert gagnagildi hefur tiltekið vægi
x-ás
lárétti ásinn í rétthyrndu hnitakerfi
y-ás
lóðrétti ásinn í rétthyrndu hnitakerfi
z-gildi (eða z-stig)
stöðumælikvarði sem fæst með því að draga meðaltalið frá gagnagildinu og deila mismuninum með staðalfrávikinu