1313 Bylgjur og eiginleikar þeirra

Hæfnisverkefni

13.3 Samverkun bylgna: Samlagning og samliðun

Sjávarbylgjur skella endurtekið á ströndum og strandlengjum. Orka þeirra getur valdið rofi og hruni lands. Vísindamenn og verkfræðingar þurfa að rannsaka hvernig bylgjur hafa áhrif á strendur til að meta ógnir við strandbyggðir og hanna brimgarða.

Í þessu verkefni smíðar þú bylgjutank og fyllir hann af vatni. Líktu eftir strönd með því að setja sand í annan endann. Búðu til bylgjur með því að hreyfa tré- eða plaststykki upp og niður í vatninu. Mældu eða áætlaðu bylgjulengd, sveiflutíma, tíðni og útslag bylgjunnar og athugaðu áhrif bylgjunnar á sandinn. Búðu til bylgjur með mismunandi útslagi og tíðni og skráðu athuganir þínar í hvert skipti. Notaðu stærðfræðilega framsetningu til að sýna sambandið milli mismunandi eiginleika bylgna. Breyttu staðsetningu sandsins til að búa til brattari strönd og skráðu athuganir þínar. Gerðu eigindlega greiningu á áhrifum bylgna á ströndina. Hvers konar bylgja veldur mestu tjóni? Við hvaða hæð, bylgjulengd og tíðni brotna bylgjur? Hvernig hefur bratti strandarinnar áhrif á bylgjurnar?