Fjölvalsspurningar
13.1 Tegundir bylgna
Spurning 28. Hvers konar bylgjur eru hljóðbylgjur?
- Vélrænar bylgjur
- Rafsegulbylgjur
Spurning 29. Hvers konar bylgju myndar tónkvísl?
- Púlsbylgju
- Lotubundna bylgju
- Rafsegulbylgju
Spurning 30. Hvers konar bylgjur eru rafsegulbylgjur?
- Langsbylgjur
- Þverbylgjur
- Vélrænar bylgjur
- P-bylgjur
Spurning 31. Hvað er truflun í samhengi við bylgjur?
- Hún vísar til viðnáms sem myndast af völdum agna í efni.
- Hún vísar til sveiflu sem orka veldur og myndar bylgju.
- Hún vísar til bylgjulengdar bylgjunnar.
- Hún vísar til hraða bylgjunnar.
13.2 Eiginleikar bylgna: Bylgjuhraði, útslag, tíðni og sveiflutími
Spurning 32. Hvað af eftirtöldu er ekki eiginleiki bylgju?
- útslag
- sveiflutími
- massi
- bylgjuhraði
Spurning 33. Ef þú ert í kyrrstæðum báti, hversu mikið breytist hæð þín þegar öldutoppur með hæðina 2 m skellur á þér?
- 0 m
- 1 m
- 2 m
- 4 m
Spurning 34. Hver er sveiflutími bylgju með tíðnina 0,5 Hz?
- 0,5 s
- 1 s
- 2 s
- 3 s
Spurning 35. Hvert er sambandið milli útslags bylgju og hraða hennar?
- Útslag bylgju er óháð hraða hennar.
- Útslag bylgju er í réttu hlutfalli við hraða hennar.
- Útslag bylgju er í réttu hlutfalli við andhverfu hraðans í öðru veldi.
- Útslag bylgju er í réttu hlutfalli við andhverfu hraðans.
Spurning 36. Af hverju ræðst hraði jarðskjálftabylgna?
- Hraði jarðskjálftabylgna ræðst af stærð efnisins.
- Hraði jarðskjálftabylgna ræðst af lögun efnisins.
- Hraði jarðskjálftabylgna ræðst af stífni efnisins.
13.3 Samverkun bylgna: Samlagning og samliðun
Spurning 37. Hvað leggst saman þegar tvær bylgjur skarast?
- útslög
- bylgjulengdir
- bylgjuhraðar
Spurning 38. Hrein styrkjandi samliðun verður milli tveggja bylgna þegar þær hafa _____.
- sömu tíðni og eru í fasa
- sömu tíðni og eru úr fasa
- sama útslag og eru í fasa
- sama útslag og eru úr fasa
Spurning 39. Hvers konar samliðun getur átt sér stað milli tveggja eins bylgna sem ferðast í gagnstæðar áttir?
- Aðeins styrkjandi samliðun
- Aðeins eyðandi samliðun
- Bæði styrkjandi og eyðandi samliðun
- Hvorki styrkjandi né eyðandi samliðun
Spurning 40. Hvaða hugtak vísar til beygingar ljóss á skilum tveggja efna?
- samliðun
- bylgjubeygja
- dreifing
- bylgjubrot
Spurning 41. Hvaða stærð bylgju breytist við samlagningu?
- bylgjulengd
- stefna
- útslag
- tíðni
Spurning 42. Hvenær leggjast útslög tveggja bylgna saman?
- Þegar útslög þeirra eru eins
- Þegar útslög þeirra eru mismunandi
- Þegar þær breiðast út í hornréttar stefnur
- Þegar þær breiðast út eftir sömu línu í gagnstæðar áttir