Verkefni
Allir fá að vera með! – Litun neta
Nýtum þekkingu þína á litun neta. Verkefnið er að skipuleggja íþrótta- og leikjadag með eftirfarandi skrefum.
- Veldu sjö til tíu viðfangsefni fyrir daginn. Þú getur leitað hugmynda á netinu.
- Búðu til könnun þar sem þátttakendur velja þau þrjú til fimm viðfangsefni sem þeir helst vilja taka þátt í. Leggðu könnunina fyrir sjö til tíu manns.
- Notaðu niðurstöður könnunarinnar til að búa til net þar sem hver hnútur táknar eitt viðfangsefni. Tveir hnútar liggja saman ef að minnsta kosti einn þátttakandi vill taka þátt í báðum viðfangsefnum.
- Finndu lágmarkslitun netsins. Útskýrðu hvernig þú fannst hana og hvernig þú veist hver litunartala netsins er.
- Notaðu lausn d-liðar til að finna lágmarksfjölda tímasvæða sem þarf svo allir geti tekið þátt í þremur efstu valkostum sínum.
- Finndu nykur netsins sem þú bjóst til. Útskýrðu hvað leggir þess tákna.
Fallegur dagur í hverfinu – Euler-rásir
Beitum því sem þú hefur lært á samfélagið þar sem þú býrð. Notaðu tiltæk kortagögn til að búa til ítarlegt net af hverfinu þar sem hnútar tákna beygjur og gatnamót. Taktu með nægilega stóran hluta hverfisins til að hafa að minnsta kosti tíu gatnamót eða beygjur. Notaðu síðan netið til að svara eftirfarandi spurningum.
- Merktu leggi netsins.
- Ákvarðaðu hvort netið sé Euler-net og útskýrðu hvernig þú veist það. Ef það er ekki Euler-net skaltu Euler-væða það.
- Finndu Euler-rás í netinu og gefðu upp röð hnútanna.
- Hvað táknar Euler-rásin úr c-lið fyrir hverfið þitt?
- Lýstu hagnýtu verkefni þar sem mætti nota þessa Euler-rás.
Draumaferðalag – Hamilton-rásir og Hamilton-vegir
Hvert í heiminum langar þig mest að ferðast: að Eiffelturninum í París, á Broadway-söngleik í New York, í hjólaferð um Amsterdam, í hvala- og höfrungaskoðun við Tenerife á Kanaríeyjum, að píramídanum í Gísa, að Jokhang-hofinu í Tíbet eða eitthvert annað? Skipuleggjum draumaferðalagið þitt.
- Hvaða fjórir áfangastaðir eru efstir á óskalistanum þínum?
- Teiknaðu fullkomið vegið net með fimm hnúta sem tákna áfangastaðina fjóra og heimaborg þína. Vægin tákna ferðakostnað milli borganna.
- Notaðu ferðavef, til dæmis Travelocity, til að finna besta flugverð milli sérhvers borgarpars. Skráðu flugfélög, flugnúmer og verð. Ef enginn flugvöllur er á áfangastaðnum skaltu einnig taka með kostnað við ferð á landi frá næsta flugvelli.
- Notaðu aðferð næsta granna til að finna Hamilton-rás með lágt vægi sem hefst og endar í heimaborg þinni. Hvert er vægi rásarinnar og hvað táknar það?
- Notaðu tæmandi aðferðina til að finna Hamilton-rás með lægsta vægið sem hefst og endar í heimaborg þinni. Hvert er vægi rásarinnar? Er það sama og vægi Hamilton-rásarinnar sem þú fannst í 4. lið eða annað?
- Gerum ráð fyrir að þú hyggist ekki snúa heim heldur flytja til uppáhaldsstaðarins á listanum og viljir koma við á hinum þremur áfangastöðunum nákvæmlega einu sinni á leiðinni. Hvert myndir þú flytja? Skráðu alla Hamilton-vegi milli heimaborgar þinnar og uppáhaldsstaðarins.
- Finndu vægi allra Hamilton-veganna úr 6. lið.