Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Þegar einstaklingur vinnur í happdrætti getur hann stundum valið milli þess að fá allan vinninginn greiddan í einu lagi og þess að fá lægri greiðslur með föstu millibili. Til dæmis gætir þú valið milli þess að fá 20 milljónir evra í dag og þess að fá 1,5 milljónir evra á ári næstu 20 árin. Hvort er hagstæðara? Vissulega jafngilda 1,5 milljónir evra á ári í 20 ár samtals 30 milljónum evra. Ef þú fengir 20 milljónir evra í dag gætir þú hins vegar fjárfest féð.
En hvað ef valið stæði milli þess að fá 1 milljón evra á ári um ókomna tíð (og greiðslurnar gengju til erfingja þinna) og þess að fá 20 milljónir evra í dag? Hvort væri hagstæðara? Til að svara þessum spurningum þarftu að kunna að nota óendanlegar raðir til að reikna núvirði reglubundinna greiðslna (sjá dæmi 6.7).
Óendanleg röð á forminu kallast veldaröð. Liðirnir innihalda breytuna x og því má nota veldaraðir til að skilgreina föll. Með þeim má tákna tiltekin föll. Þær eru líka mikilvægar af því að með þeim má rita föll sem aðeins er hægt að setja fram sem „óendanlegar margliður“. Auk þess er auðvelt að deilda og heilda veldaraðir. Því nýtast þær vel til að leysa deildajöfnur og heilda flókin föll. Einnig má stýfa óendanlega röð og fá þannig endanlega margliðu sem nota má til að nálga fallgildi. Veldaraðir nýtast á ýmsum sviðum, þar á meðal í eðlisfræði, efnafræði, líffræði og hagfræði. Í þessum kafla sjáum við að ef föll eru sett fram sem veldaraðir getum við leyst stærðfræðileg vandamál sem ekki verða leyst með öðrum aðferðum.