3030 Form og lífeðlisfræði plantna
Lykilhugtök
- abscisínsýra (ABA)
- plöntuhormón sem framkallar dvala í fræjum og öðrum líffærum(abscisic acid (ABA))
- losun
- lífeðlisfræðilegt ferli sem leiðir til þess að plöntulíffæri, svo sem laufblað eða krónublað, fellur af(abscission)
- hjátrót
- rót sem vex út frá öðrum plöntuhluta en kímrót plöntufóstursins(adventitious root)
- endabrum
- brum sem myndast á enda sprota(apical bud)
- endavaxtarbroddur
- vaxtarvefur á endum stöngla og róta sem gerir plöntu kleift að lengjast(apical meristem)
- áxín
- plöntuhormón sem hefur áhrif á frumulengingu í ljóssækni, þyngdarsækni, toppræði og rótarvexti(auxin)
- axlarbrum
- brum í blaðöxl, svæðinu á stöngli þar sem blaðstilkur tengist stönglinum(axillary bud)
- börkur
- seigt, vatnshelt ytra lag trjákenndra stöngla, myndað meðal annars úr korkfrumum(bark)
- laukur
- ummyndaður neðanjarðarstöngull sem samanstendur af stóru brumi umkringdu mörgum blaðhreistrum(bulb)
- Caspary-rönd
- vaxkennd rönd í innlagi sem neyðir vatn til að fara yfir frumuhimnur innlagsins áður en það fer inn í miðstrenginn(Casparian strip)
- litberi
- sameind eða sameindahópur sem gleypir ljós(chromophore)
- þykkveggjafruma
- aflöng plöntufruma með ójafnt þykknaða veggi sem styrkir stöngla og laufblöð(collenchyma cell)
- grannfruma
- sáldvefsfruma tengd sáldpípueiningum og rík af ríbósómum og hvatberum(companion cell)
- samsett laufblað
- laufblað þar sem blaðkan skiptist í smáblöð sem tengjast miðtaug eða blaðás(compound leaf)
- stöngulhnýði
- rúnnaður, kjötmikill neðanjarðarstöngull sem geymir forðanæringu(corm)
- berkur
- grunnvefur milli æðvefs og yfirhúðar í stöngli eða rót(cortex)
- krýptókróm
- prótín sem gleypir ljós á bláa og útfjólubláa svæði ljósrófsins(cryptochrome)
- vaxhúð
- vaxkennt verndarlag á yfirborði laufblaðs(cuticle)
- cýtókínín
- plöntuhormón sem stuðlar að frumuskiptingu(cytokinin)
- þekjuvefur
- verndandi plöntuvefur sem þekur ysta hluta plöntunnar og stjórnar gasskiptum(dermal tissue)
- innlag
- frumulag í rót sem myndar valgegndræpan tálma milli grunnvefs og æðvefs(endodermis)
- yfirhúð
- eitt frumulag í þekjuvef plantna sem þekur og verndar undirliggjandi vef(epidermis)
- etýlen
- rokgjarnt plöntuhormón sem tengist þroskun ávaxta, visnun blóma og lauffalli(ethylene)
- trefjarótarkerfi
- rótarkerfi þar sem rætur vaxa í þyrpingu frá grunni stönguls og mynda þétt rótanet; algengt í einkímblöðungum(fibrous root system)
- gibberellín (GA)
- plöntuhormón sem örvar lengingu sprota, spírun fræja og þroskun aldina og blóma(gibberellin (GA))
- grunnvefur
- plöntuvefur sem tekur þátt í ljóstillífun, veitir stuðning og geymir vatn og sykrur(ground tissue)
- varðfrumur
- frumupar sitt hvorum megin við loftauga sem stjórnar opnun þess og þar með flutningi lofttegunda og vatnsgufu(guard cells)
- innskotsvaxtarbroddur
- vaxtarvefur við liði og grunn blaðkna; finnst einkum í einkímblöðungum(intercalary meristem)
- liðbil
- svæði milli liða á stöngli(internode)
- jasmónöt
- lítil fjölskylda efnasambanda sem eru afleiður línólsýru og koma við sögu í vörnum plantna(jasmonates)
- blaðka
- flatur, breiður hluti laufblaðs(lamina)
- hliðarvaxtarbroddur
- vaxtarvefur sem gerir plöntu kleift að auka þykkt eða ummál(lateral meristem)
- korkop
- op á yfirborði þroskaðra trjákenndra stöngla sem auðveldar gasskipti(lenticel)
- megapascal (MPa)
- þrýstieining sem notuð er til að mæla vatnsmætti(megapascal (MPa))
- vaxtarvefur
- svæði í plöntu þar sem stöðugur vöxtur á sér stað(meristem)
- vaxtarvefur
- vefur með frumum sem skipta sér stöðugt og stuðla að vexti plöntunnar(meristematic tissue)
- neikvæð þyngdarsækni
- vöxtur frá þyngdarafli jarðar(negative gravitropism)
- liður
- staður á stöngli þar sem laufblöð, blóm eða loftrætur eiga upptök sín(node)
- oligosakkarín
- efnaboð sem skiptir máli í vörnum plantna gegn bakteríu- og sveppasýkingum(oligosaccharin)
- fingrað samsett laufblað
- laufgerð þar sem smáblöð ganga út frá einum punkti líkt og fingur frá lófa(palmately compound leaf)
- grunnvefsfruma
- algeng plöntufruma í stöngli, rót, laufblaði og aldinkjöti; sinnir ljóstillífun og geymir sterkju(parenchyma cell)
- hjólvefur
- ytri mörk miðstrengs sem hliðarrætur geta vaxið frá(pericycle)
- korkhúð
- ysta hlífðarlag trjákenndra stöngla; samanstendur af korkvaxtarlagi, korkfrumum og korkhúðvef(periderm)
- fullþroska vefur
- plöntuvefur úr frumum sem eru hættar að skipta sér virkt(permanent tissue)
- blaðstilkur
- stilkur laufblaðs(petiole)
- ljósháður formþroski
- vöxtur og þroski plantna sem svar við ljósi(photomorphogenesis)
- ljóslotusvörun
- svörun plantna við árstíma og lengd dags og nætur, til dæmis við spírun eða blómgun(photoperiodism)
- ljóssækniprótín
- bláljósviðtaki sem stuðlar að ljóssækni, opnun og lokun loftaugna og öðrum svörunum sem efla ljóstillífun(phototropin)
- ljóssækni
- stefnubundin sveigja eða vöxtur plöntu í átt að ljósgjafa(phototropism)
- blaðskipan
- niðurröðun laufblaða á stöngli(phyllotaxy)
- fýtókróm
- litprótín í plöntum sem er til í tveimur afturkræfum formum, Pr og Pfr, og miðlar svörun við rauðu og fjarrauðu ljósi(phytochrome)
- fjaðrað samsett laufblað
- laufgerð þar sem smáblöð raðast beggja vegna miðtaugar eða blaðáss(pinnately compound leaf)
- mergur
- grunnvefur innar en æðvefur í stöngli eða rót(pith)
- jákvæð þyngdarsækni
- vöxtur í átt að þyngdarmiðju jarðar(positive gravitropism)
- frumvöxtur
- vöxtur sem lengir stöngul eða rót vegna frumuskiptingar í vaxtarbroddi sprota eða rótar(primary growth)
- jarðstöngull
- ummyndaður neðanjarðarstöngull sem vex lárétt við yfirborð jarðvegs og hefur liði og liðbil(rhizome)
- rótarhetta
- verndandi frumur sem þekja enda vaxandi rótar(root cap)
- rótarhár
- hárfín framlenging yfirhúðarfrumu sem eykur yfirborðsflatarmál rótar og auðveldar upptöku vatns og steinefna(root hair)
- rótarkerfi
- neðanjarðarhluti plöntu sem styður hana og tekur upp vatn og steinefni(root system)
- ofanjarðarrengla
- jarðrengla sem liggur ofanjarðar og myndar nýjar klónaðar plöntur við liði(runner)
- trefjafruma
- plöntufruma með þykka síðveggi sem veitir styrk og er yfirleitt dauð við þroska(sclerenchyma cell)
- síðvöxtur
- vöxtur sem eykur þykkt eða ummál vegna hliðarvaxtarvefs og korkvaxtarlags(secondary growth)
- stilklaus
- um laufblað sem er án blaðstilks og festist beint við stöngul(sessile)
- sprotakerfi
- ofanjarðarhluti plöntu, bæði óæxlunarfæri eins og laufblöð og stönglar og æxlunarfæri eins og blóm og aldin(shoot system)
- sáldpípueining
- sáldvefsfruma sem raðast endi í enda og myndar sáldpípu sem flytur lífræn efni, svo sem sykrur og amínósýrur(sieve-tube cell)
- einfalt laufblað
- laufblað þar sem blaðkan er óskipt eða aðeins flipótt(simple leaf)
- viðtaki
- vaxandi eða geymsluvefur, svo sem rætur og ung laufblöð, sem þarfnast ljóstillífunarafurða(sink)
- uppspretta
- líffæri eða vefur sem framleiðir eða flytur út ljóstillífunarafurðir fyrir plöntu(source)
- statólíti / jafnvægissteinn
- sterkjuríkt frumulíffæri í plöntum sem sekkur vegna þyngdarafls og nýtist við þyngdarskynjun(statolith)
- miðstrengur
- innri hluti rótar sem inniheldur æðvef og er umlukinn innlagi(stele)
- axlarblað
- lítil græn bygging sitt hvorum megin við blaðstilksgrunn(stipule)
- jarðrengla
- ummyndaður stöngull sem liggur samsíða jörðu og getur myndað nýjar plöntur við liði(stolon)
- strígólaktón
- plöntuhormón sem stuðlar að spírun fræja hjá sumum tegundum og hamlar þroskun hliðarsprota þegar áxín vantar(strigolactone)
- stólparótarkerfi
- rótarkerfi með einni meginrót sem vex lóðrétt og fáum hliðarrótum; algengt í tvíkímblöðungum(tap root system)
- vafþráður
- ummyndaður stöngull úr mjóum, vefjandi þráðum sem nýtast til stuðnings eða klifurs(tendril)
- snertimótun
- þroskasvörun við endurteknu eða stöðugu vélrænu álagi eða snertingu(thigmomorphogenesis)
- snertinastía
- snertiviðbragð sem er óháð stefnu áreitisins(thigmonastic)
- snertisækni
- stefnubundinn vöxtur plöntu sem svar við stöðugri snertingu(thigmotropism)
- þyrnir
- ummynduð stöngulgrein sem myndar beittan útvöxt og verndar plöntuna(thorn)
- vatnsleiðslufruma
- viðarvefsfruma með þykka síðveggi sem hjálpar til við flutning vatns(tracheid)
- sáldflutningur
- magnflutningur ljóstillífunarafurða frá uppsprettu til viðtaka í æðplöntum(translocation)
- útgufun
- tap vatnsgufu út í andrúmsloftið í gegnum loftaugu(transpiration)
- þekjuhár
- hárkennd bygging á yfirborði yfirhúðar(trichome)
- hnýði
- ummyndaður neðanjarðarstöngull sem er aðlagaður að sterkjugeymslu og hefur mörg hjábrum(tuber)
- æðastrengur
- strengur í stöngli gerður úr viðarvef og sáldvef(vascular bundle)
- miðstrengur
- strengur eða miðlægur hluti rótar gerður úr viðarvef og sáldvef(vascular stele)
- æðvefur
- vefur úr viðarvef og sáldvef sem flytur vatn, steinefni og lífræn efni um plöntuna(vascular tissue)
- æðaskipan
- mynstur blaðæða í laufblaði; getur verið samhliða, netlaga eða kvíslskipt eins og í Ginkgo biloba(venation)
- viðaræð / æðaeining
- viðarvefsfruma sem er styttri en vatnsleiðslufruma og hefur þynnri veggi(vessel element)
- vatnsmætti (Ψw)
- stöðuorka vatnslausnar á rúmmálseiningu miðað við hreint vatn við loftþrýsting og umhverfishita(water potential (Ψw))
- kransstæð
- blaðskipan þar sem þrjú eða fleiri laufblöð tengjast sama lið(whorled)