Inngangur

Yfirlit kafla
- Tilraunir Mendels og lögmál líkinda
- Einkenni og eiginleikar
- Lögmál erfða
Erfðafræði er rannsókn á erfðum. Johann Gregor Mendel lagði grunninn að erfðafræðinni löngu áður en litningar eða gen höfðu verið greind, á tíma þegar meiósa var ekki vel skilin. Mendel valdi einfalt líffræðilegt kerfi og framkvæmdi kerfisbundnar, megindlegar greiningar á stórum úrtökum. Vegna rannsókna Mendels komu grundvallarlögmál erfða í ljós. Nú vitum við að gen, sem eru borin á litningum, eru starfrænar grunneiningar erfða og geta eftirmyndast, tjáðst eða tekið stökkbreytingum. Í dag eru þær hugmyndir sem Mendel setti fram grundvöllur klassískrar erfðafræði, eða erfðafræði Mendels. Ekki erfast allir eiginleikar frá foreldrum til afkvæma samkvæmt erfðafræði Mendels, en tilraunir Mendels eru frábær upphafspunktur til að hugsa um erfðir.