5.3 Hlutverk húðkerfisins
5.3 Hlutverk húðkerfisins
Námsmarkmið
Í lok þessa kafla átt þú að geta:
- Lýst ólíkum hlutverkum húðarinnar og byggingum sem gera þau möguleg
- Útskýrt hvernig húðin stuðlar að viðhaldi líkamshita
Húðin og fylgilíffæri hennar gegna ýmsum lífsnauðsynlegum hlutverkum. Þau verja líkamann gegn ásókn örvera, efna og annarra umhverfisþátta, koma í veg fyrir ofþornun, virka sem skynfæri, stýra líkamshita og rafvakajafnvægi og mynda D-vítamín. Undirhúðin gegnir mikilvægu hlutverki við að geyma fitu, myndar „púða“ yfir undirliggjandi byggingar og einangrar líkamann gegn kulda.
Vernd
Húðin ver aðra hluta líkamans gegn náttúruöflum á borð við vind, vatn og útfjólubláa geislun sólar. Keratín- og glýkólípíðlögin í hornlagi húðþekjunnar mynda varnartálma gegn vatnstapi. Húðin er einnig fyrsta varnarlína líkamans gegn núningi af völdum óhreininda, örvera eða skaðlegra efna. Sviti frá svitakirtlum inniheldur dermsidín, sem hefur örveruhemjandi eiginleika og hamlar því að örverur fjölgi sér óhóflega á yfirborði húðarinnar.
Skynhlutverk
Þú getur fundið fyrir því þegar maur skríður á húðinni og slegið hann burt áður en hann bítur vegna þess að húðin, einkum hárin sem standa út úr hársekkjunum, skynjar breytingar í umhverfinu. Hárrótartaugaflækjan umhverfis botn hársekksins skynjar truflunina og sendir upplýsingarnar til miðtaugakerfisins, það er heila og mænu. Miðtaugakerfið getur síðan brugðist við með því að virkja beinagrindarvöðva augnanna svo þú sjáir maurinn og beinagrindarvöðva líkamans svo þú getir brugðist við honum.
Húðin gegnir hlutverki skynfæris vegna þess að húðþekjan, leðurhúðin og undirhúðin innihalda sérhæfðar skyntaugabyggingar sem greina snertingu, yfirborðshita og sársauka. Þessir viðtakar eru þéttastir í fingurgómunum, sem eru sérstaklega næmir fyrir snertingu. Þar má einkum nefna Meissner-korn (snertikorn) (Mynd 5.15), sem bregðast við léttri snertingu, og Pacini-korn (lagkorn), sem bregðast við titringi. Merkel-frumur, sem eru á víð og dreif í grunnlagi húðþekjunnar, eru einnig snertiviðtakar. Auk þessara sérhæfðu viðtaka tengjast skyntaugar hverjum hársekk, sársauka- og hitaviðtakar dreifast um húðina og hreyfitaugar ítauga hárreisivöðva og kirtla. Þessi ríkulega ítaugun hjálpar okkur að skynja umhverfið og bregðast við á viðeigandi hátt.

Hitastjórnun
Húðkerfið tekur þátt í stjórnun líkamshita með nánum tengslum sínum við semjutaugakerfið, þann hluta taugakerfisins sem á þátt í flótta- eða árásarviðbragði. Semjutaugakerfið fylgist stöðugt með líkamshitanum og hrindir af stað viðeigandi hreyfisvörun. Rifjaðu upp að svitakirtlar, sem eru fylgilíffæri húðarinnar, seyta vatni, salti og öðrum efnum til að kæla líkamann þegar honum hitnar. Jafnvel þegar svitamyndun er ekki sýnileg seytir líkaminn um 500 mL af svita á dag; það nefnist ómerkjanleg svitamyndun. Ef líkamanum hitnar um of vegna mikils umhverfishita, erfiðrar áreynslu (Mynd 5.16a og c) eða hvors tveggja örvar semjutaugakerfið svitakirtlana til að mynda mikið magn svita. Hjá einstaklingi við mikla áreynslu getur svitamyndunin numið 0,7 til 1,5 L á klukkustund. Þegar svitinn gufar upp af yfirborði húðarinnar losnar líkaminn við varma og kólnar.
Auk svitamyndunar víkka slagæðlingar í leðurhúðinni svo umframvarmi sem blóðið flytur geti borist gegnum húðina út í umhverfið (Mynd 5.16b). Þetta skýrir roða í húð sem margir finna fyrir við áreynslu.

Þegar líkamshitinn lækkar dragast slagæðlingarnir saman til að draga úr varmatapi, einkum við enda fingra og táa og í nefbroddinum. Minna blóðflæði getur gert húðina hvítleita. Þótt húðhitinn lækki kemur þetta í veg fyrir varmatap með óvirkum hætti og heldur innri líffærum og byggingum líkamans heitum. Ef húðhitinn lækkar um of, til dæmis þegar umhverfishitinn er undir frostmarki, getur varðveisla kjarnahita líkamans leitt til þess að húðin frjósi. Það ástand nefnist kal.
Myndun D-vítamíns
Húðþekja manna myndar D-vítamín þegar hún verður fyrir útfjólublárri geislun. Fyrir áhrif sólarljóss myndast gerð D3-vítamíns sem nefnist kólekalsíferól úr afleiðu steraefnisins kólesteróls í húðinni. Lifrin umbreytir kólekalsíferóli í kalsidíól, sem nýrun umbreyta síðan í kalsítríól, virkt efnaform vítamínsins. D-vítamín er nauðsynlegt fyrir eðlilegt frásog kalsíums og fosfats, sem eru mikilvæg fyrir heilbrigð bein. Skortur á sólarljósi getur leitt til D-vítamínskorts og valdið beinkröm, sársaukafullu ástandi hjá börnum þar sem beinin afmyndast vegna kalsíumskorts og fæturnir verða hjólbeinóttir. Eldra fólk með D-vítamínskort getur fengið beinmeyru, það er mýkingu beina. Nú á dögum er D-vítamíni bætt í ýmis matvæli, meðal annars mjólk og appelsínusafa, og dregur það úr þörfinni fyrir sólarljós.
Auk þess að gegna nauðsynlegu hlutverki fyrir beinheilsu er D-vítamín mikilvægt fyrir almennar ónæmisvarnir gegn bakteríu-, veiru- og sveppasýkingum. Nýlegar rannsóknir benda einnig til tengsla milli D-vítamínskorts og krabbameins.